Íslensk ræðismannsskrifstofa opnuð í Malaví

2.5.2003

Fréttatilkynning frá sendiráði Íslands í Mósambík og skrifstofu ÞSSÍ í Malaví.

Föstudaginn 28. mars sl. var ræðismannsskrifstofa formlega opnuð í höfuðborginni Lilongwe í Malaví að viðstöddu fjölmenni. Íslenskur kjörræðismaður í Malaví er Davie D.E. Mwale en hann var skipaður 27. ágúst á síðasta ári. Ræðismannsskrifstofan er til húsa í ráðgjafafyrirtæki hans the Fitzwilliam Partnership. Heimilisfang skrifstofunnar er: ADL House, 2nd Floor, P.O. Box 31402, Capital City, Lilongwe, Malawi.

Sendiherra Íslands í sunnanverðri Afríku með aðsetur í Maputo í Mósambík, dr. Björn Dagbjartsson, var viðstaddur opnunina. Í opnunarræðu sinni ræddi hann m.a. um þróunarsamvinnu landanna sem staðið hefur samfellt yfir síðan 1988 og þá vináttu sem skapast hafi milli Íslendinga og Malava á þeim tíma. Ræðismaðurinn, Davie Mwale, gerði þróunarsamvinnu landanna einnig að umtalsefni í ræðu sinni og kom fram í máli hans að Malaví sé það þróunarland sem Íslendingar veiti mestum fjármunum til. Kom fram í máli beggja ósk um áframhaldandi og vaxandi tengsl milli landanna. Þá flutti vara utanríkisráðherra Malaví, Chimunthu Banda, ræðu þar sem hann þakkaði Íslendingum fyrir stuðning í gegnum árin sem skilað hefði miklum og góðum árangri. Sendiherra Noregs í Malaví, Asbjorn Eidhammer, tók einnig til máls og sagði m.a. frá hinum sérstöku og nánu tengslum Norðurlandaþjóðanna, ekki síst milli Íslands og Noregs, jafnframt því að óska Íslendingum og Malövum til hamingju með þennan áfanga.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica