Fyrsta Mæðrahúsið tekið í notkun

25.5.2007

Guatalupe
Don Guatalupe
Eldhuginn Guatalupa flytur ræðu, stjórnandi hússins og frumkvöðull að starfsemi Mæðrahússins.
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

“Starfsemi Mæðrahúsanna hefur reynst áhrifamikil leið til að vinna gegn mæðra- og ungbarnadauða sem er hár í Níkaragva,” segir Gerður Gestsdóttir ráðgjafi félagslegra verkefna Þróunarsamvinnustofnunar í Níkaragva en á dögunum var fyrsta Mæðrahúsið, sem byggt er fyrir íslenskt fé, formlega tekið í notkun í bænum Camoapa. Fjögur önnur Mæðrahús sem byggð eru á vegum ÞSSÍ verða opnuð á næstunni og bætast í hóp þeirra 52 sem fyrir eru í landinu.

Gerður segir að fyrir ári hafi bæjaryfirvöld í Camoapa átt fund ásamt fulltrúum Rauða krossins og heilbrigðisráðuneytis um möguleika þess að setja á laggirnar Mæðrahús í bænum. “Mæðrahúsin eru fyrir ófrískar konur í áhættumeðgöngu sem koma úr strjálbýli þannig að þær geti verið nálægt heilbrigðisþjónustu vikurnar fyrir og eftir fæðingu,” segir Gerður. “Þörfin í Camoapa var augljós en það voru engir peningar til að gera neitt. Fulltrúi ráðuneytisins hét stuðningi og nokkrum mánuðum síðar var skrifað undir samning milli Íslands og ráðuneytisins um byggingu fimm Mæðrahúsa. Nú hefur það fyrsta verið formlega tekið í notkun.”

Frelsandi engill

Efnt var til hátíðahalda í tilefni af formlegri opnun Mæðrahússins. “Í setningarræðunni lýsti Don Guatalupe formaður Rauða krossins í Camopapa og framkvæmdastjóri Mæðrahússins fulltrúa ráðuneytisins sem “frelsandi engli” þegar hún kom “með peningana frá Íslandi”. En sannleikurinn er sá að líklega hefði lítið gerst ef hann hefði sjálfur ekki verið svona duglegur að minna á Camoapa og ýta á eftir málinu. Viðtökur samfélagsins hafa líka verið framúrskarandi því þótt húsið hafi verið formlega opnað núna hefur það tekið við konum frá því í desember. Á þessu ári hefur 41 kona fengið þar skjól og engin engin kona hefur látist í Camoapa í tengslum við meðgöngu eða fæðingu," segir Gerður.

Að sögn hennar hafa 43 konur í Níkaragva látist á þessu ári í tengslum við meðgöngu og fæðingu og um 90 börn orðið munaðarlaus af þeim sökum. Gerður telur líklegt að dauðsföllum sem þessum fjölgi á næstu mánuðum því rigningartíminn sé hafinn með tilheyrandi erfiðleikum í samgöngum og því verði erfiðara fyrir konur að fá aðstoð heilbrigðisstarfsfólks við fæðingu. “Af þessum ástæðum er svo mikilvægt að koma upp Mæðrahúsum sem víðast,” segir Gerður. “Konurnar geta þá í rólegheitum flutt sig þangað undir lok meðgöngunnar og fengið þá þjónustu sem þær þurfa. Þar gegna eldhugar eins og Don Guatalupe miklu hlutverki við að greina þörfina í samfélagi sínu og gefast ekki upp fyrr en þeirri þörf er mætt. Við hér á skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands eru stolt af því að hafa fengið að taka þátt í þessari uppbyggingu, en vinnan hjá þeim í Camoapa er rétt að byrja,” segir Gerður Gestsdóttir.