Mikil ánægja með námskeið í verkefnastjórnun á Sri Lanka

27.6.2007

Þátttakendur á námskeiðinu
Þátttakendur á námskeiðinu
Mikil ánægja með námskeið um verkefnastjórnun á Sri Lanka.

Fyrsta námskeiðið af þremur í verkefnastjórnun fyrir starfsfólk í stofnunum sjávarútvegsráðuneytisins á Sri Lanka var haldið þar dagana 15.-18. júní. Námskeiðið er haldið á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í samvinnu við Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, Háskólans á Akureyri og sjávarútvegsráðuneytis Sri Lanka.

“Markmiðið með námskeiðinu er að efla þekkingu við hönnun og stjórnun verkefna innan stofnanna sjávarútvegsráðuneytis Sri Lanka og auka samvinnu á milli stofnanna ráðuneytisins,” segir Bjarni Eiríksson sjávarútvegsfræðingur og verkefnastjóri við Háskólann á Akureyri.

Vinna að undirbúningi námskeiðsins hófst skömmu eftir síðustu áramót þegar tveir starfsmenn Háskólans á Akureyri ásamt forstöðmanni Sjávarútvegsskólans fóru til Sri Lanka til þess að meta þörf fyrir faglega aðstoð. Í þeirri ferð var ákveðið að vinna að gerð stutts námskeiðs í verkefnastjórnun fyrir stofnanir sjávarútvegsráðuneytis Sri Lanka. Myndað var teymi frá HA og sjávarútvegsráðuneyti Sri Lanka sem hefur unnið að undirbúningi námskeiðsins og þróun á námsefni þess. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og verklegum æfingum sem eru sérsniðnar að aðstæðum í stofnun undir sjávarútvegsráðuneyti Sri Lanka.

Samstarfaðilar frá Sri Lanka komu til Íslands í mars og kynntu sér hvernig staðið er að verkefnastjórnun hjá íslenskum stofnunum og fyrirtækjum. Tveir sérfræðingar frá Háskólanum á Akureyri hafa verið á Sri Lanka í vor til að vinna að gerð námsefnisins í samstarfi við innlendt samstarfsfólk og við undirbúning kennslu. Vinna þessi fór fram hjá ÞSSÍ á Sri Lanka.  

Á fyrsta námskeiðinu voru 19 þátttakendur og mikil ánægja var hjá þeim með námskeiðið, að sögn Bjarna. “Kennarar voru úr hópi samstarfaðila í Sri Lanka og er það liður í að þjálfa þá í að nota vinnubrögð verkefnistjórnunar,” segir hann og bætir við að fyrirhugað sé að halda tvö námskeið til viðbótar en síðan taki sjávarútvegsráðuneyti Sri Lanka við frekara námsskeiðshaldi.

 

Myndir frá námskeiðinu





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica