Nýr barnaskóli í þorpinu Msaka við Malavívatn

15.5.2003

Fréttatilkynning frá ÞSSÍ, Malaví.

Íbúar Msaka við Malavívatn voru í hátíðarskapi þann 22. mars sl. þegar tekin var fyrsta skóflustungan að nýjum barnaskóla í þorpinu. Fulltrúi í stjórn ÞSSÍ, dr. Jón Skaptason, tók skóflustunguna að viðstöddum þorpsbúum, fulltrúum fræðslu- og sveitarstjórnarmála í Malaví og íslenskum gestum. Að því loknu tók við hátíðadagská og lögðu börn úr þorpinu sitt af mörkum þar sem þau sungu og dönsuðu fyrir gesti.

Msaka skóli er nýjasta verkefni ÞSSÍ í Malaví og er hann annar barnaskólinn sem stofnunin ræðst í að byggja í þorpum við Malavívatn. Fyrri skólinn er Namazizi skólinn í Chirombo þorpi en framkvæmdum við hann lauk árið 2000.  Ráðgert er að byggja Msaka skólann í þremur áföngum, þann fyrsta á yfirstandandi ári og þá seinni tvo á næstu tveimur árum. Reiknað er með að nemendur í skólanum verði um 1500 talsins. Núverandi skólahúsnæði í Msaka er að hruni komið og fer kennslan að miklu leyti fram undir beru lofti.

Msaka er um 10 þúsund manna þorp við Apaflóa og hefur stór hluti íbúanna viðurværi sitt af fiskveiðum, fiskverkun og fisksölu. ÞSSÍ hefur starfað á Apaflóasvæðinu um árabil og tekið þar þátt í margvíslegum samstarfsverkefnum.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica