Níkaragva: Mæðrahúsið í Bluefields hefur starfsemi
„Mæðrahúsin eru mikilvæg í báráttunni við að bæta stöðu kvenna og barna,“ segir Gerður Gestsdóttir ráðgjafi félagslegra verkefna Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Níkaragva. Hún var ásamt samstarfsfólki viðstödd opnun mæðrahúss í Bluefields á Atlantshafsströnd landsins. „Mæðrahúsið í Bluefields er hið glæsilegasta, með rúm fyrir fimmtán konur og stendur við hliðina á sjúkrahúsinu sem er mikill kostur“ segir Gerður.
„Mæðradauði er hár í Níkaragva miðað við önnur lönd í Rómönsku Ameríku og fer því miður vaxandi. Árið 2006 var hlutfall látinna mæðra 96 á hver 100 þúsund lifandi fædd börn. Að meðaltali fæðir hver kona í dreifbýli Nicaragua 5,4 börn á lífsleiðinni auk þess sem þunganir barna og unglingsstúlkna eru flestar hér miðað við löndin í þessum heimshluta, svo áhættan er vissulega til staðar. Fátækt, hefðbundin kynjahlutverk, takmarkaður aðgangur að menntun, erfiðar samgöngur og fjarlægðir á næstu heilsugæslu eða sjúkrahús má telja aðalástæður þess að mæður hér deyja við það að koma börnum sínum í heiminn,” segir Gerður.
Að sögn Gerðar hefur ICEIDA á undanförnum mánuðum lagt fram fé í byggingu eða endurbyggingu á fimm mæðrahúsum og er húsið í Bluefields annað af þeim sem opnar á árinu. Gísli Pálsson umdæmisstjóri ICEIDA í Níkaragva talaði fyrir hönd Íslands á hátíðinni og ICEIDA var margþakkaður stuðningurinn bæði af yfirvöldum og aðstandendum hússins, sem og lofsverður vilji til verka sem þótti ekki síður mikilvægur en fjárútlát. Gerður segir mæðrahúsin í raun verkefni hvers bæjar eða þorps fyrir sig og rekin af ýmsum hópum í samfélaginu, lang oftast kvennasamtökum og í einhverjum tilfellum bæjarfélaginu sjálfu. „Í þessu verkefni sameinast samfélagslegi krafturinn í innfæddum og umhyggja utanaðkomandi í að bæta aðstæður þeirra fátækustu“ segir Gerður og bætir við að eitt af forgangsatriðum stjórnvalda í Níkaragva sé að lækka tíðni mæðradauða og að mæðrahúsin séu afar mikilvægur hluti af þeirri vinnu. Í dag megi telja 54 mæðrahús víðs vegar í landinu.
Mæðrahús ætlað verðandi mæðrum úr dreifbýli
Mæðrahúsin eru ætluð fyrir verðandi mæður sem búa á einangruðum stöðum, langt frá næstu heilsugæslu eða sjúkrahúsi. Í mæðrahúsunum fá konurnar alla nauðsynlega aðhlynningu á meðgöngu, læknisaðstoð, greiningu og umönnun bæði fyrir og eftir fæðingu. Þær konur sem koma í mæðrahúsin eru yfirleitt mjög fátækar, með litla sem enga menntun og í áhættumeðgöngu. Langflestar mæðurnar fá faglega aðstoð á meðgöngu og við fæðingu í fyrsta sinn. Auk þess að daglega heimsókn læknis eða hjúkrunarfræðings, mat og skjól, er á vegum mæðrahúsanna boðin ráðgjöf um getnaðarvarnir, brjóstagjöf, heimilisofbeldi, hreinlæti, næringu, almenna umönnun barna og hvernig skal skrá barnið þegar það er fætt.
Algengast er að konurnar dvelji í mæðrahúsi í um tvær vikur fyrir fæðingu og eina eftir fæðingu. „Mæðrahúsið hér í Bluefields þjónar þó mjög stóru og dreifbýlu svæði þaðan sem konurnar þurfa oftar en ekki að ferðast fótgangandi langa leið að heiman auk þess að taka allt upp í þriggja daga bátsferð til að komast hingað. Því er nauðsynlegt fyrir þær að koma eilítið fyrr en ella til að geta hvílt sig fyrir fæðinguna. Að sama skapi geta konurnar þurft að bíða lengi eftir næstu bátsferð í áttina heim. Lengst hefur kona dvalið þrjá mánuði í húsinu,“ segir Gerður. Hún nefnir að á síðasta ári hafi 188 konur notað þjónustu gamla mæðrahússins í Bluefields, þar af hafi 78 stúlkur verið yngri en 19 ára og innan þess hóps 13 stúlkubörn á aldrinum 10-14 ára. „Hér á Atlantshafsströndinni sem er fátækasti hluti Níkaragva er fimmta hver stúlka orðin móðir milli 15 og 19 ára aldurs. Ef ekki væri fyrir mæðrahúsin er oftar en ekki eini kosturinn að fæða heima án aðstoðar fagfólks. Mæður eiga möguleika á að koma nýju lífi örugglega í heiminn, þökk sé mæðrahúsunum“ segir Gerður að lokum.




Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is