Stefnur og straumar í þróunarmálum

10.8.2007

Forsíða tímaritsins
Forsíða tímaritsins
Átta greinarhöfundar fjalla um strauma og stefnur í þróunarmálum í tímaritinu.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur gefið út tímaritið “Þróunarmál” sem kemur út árlega og fjallar að þessu sinni um strauma og stefnur í þróunarmálum. Átta greinar eru í tímaritinu eftir innlenda og erlenda höfunda, m.a. Jeffrey D. Sachs, Henning Melber, Jónínu Einarsdóttur og Þorvald Gylfason. Tímaritið er gefið út bæði á íslensku og ensku.

“Ísland getur aukið og ætti að auka mikilvægt framlag sitt til hinna fátæku í heiminum,” segir Jeffrey D. Sachs forstöðumaður Jarðarstofnunar Columbía háskóla m.a. í grein sinni “Nýjar vonir vakna með þúsaldarverkefnum Sameinuðu þjóðanna.” Hann segir að hagkerfi Íslendinga þyki eitt hið árangursríkasta í heiminum vegna mikilla framfara í orkumálum, sjávarútvegi, fjármálum og í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Af þeim sökum hafi Ísland margt að bjóða þeim sem búi við örbirgð. “Með auknum framlögum, pólítískri forystu og samstarfi einkageirans og hins opinbera getur Ísland sýnt umheiminum styrk og forystu með áhrifaríkum dæmum um hugvit, umhverfisvitund og félagslega ábyrgð,” segir Sachs.

Henning Melber forstjóri stofnunar sem kennd er við Dag Hammarskjöld skrifar grein um stjórnmál og þróun í sunnanverðri Afríku, Geir Gunnlaugsson læknir og ráðgjafi ÞSSÍ vegna heilbrigðisverkefnis í Malaví skrifar um alnæmi í Afríku sunnan Sahara, Þorsteinn Gylfason prófessor í þjóðhagfræði við Háskóla Íslands veltir fyrir sér hvað þurfi til að lyfta oki aldagamallar örbirgðar af fátækum löndum og leiða þau til bjargálna og spyr hvort þróunaraðstoð geri gagn. Jónína Einarsdóttir dósent í mannfræði og þjóðfræðiskor við Háskóla Íslands fjallar í grein sinni um menningu, átök og efnahag, Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði við HÍ nefnir grein sína “Þróunaraðstoð eða frjáls viðskipti”, Karl Benediktsson prófessor í landfræði við HÍ fjallar um Papúa Nýju-Gíneu og spyr í heiti greinar sinnar “Holur hljómur þróunartals?” og þær Þórdís Sigurðardóttir og Margrét Einarsdóttir, starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar og fyrrverandi umdæmisstjórar ÞSSÍ í Malaví, gera aðferðum og áherslum í þróunarsamvinnu skil í ítarlegri grein sem nefnist “Hvernig náum við árangri í þróunarsamvinnu?”

Umsjón með útgáfunni hafði Atli Rúnar Halldórsson hjá Athygli.