Fyrsta námskeiðið í Malaví um öryggismál fiskimanna
Fyrsta námskeiðinu sem haldið hefur verið í Malaví um öryggismál fiskimanna er nýlokið. Þróunarsamvinnustofnun Íslands stóð fyrir námskeiðinu þar sem fjallað var um skyndihjálp, slys á vatni, ástæður slysa og rétt viðbrögð við þeim. Auk þess var ítarleg kynning á öryggisbúnaði og björgunaraðferðum.
“Veðurfar á Malavívatni getur verið erfitt og stundum hvessir snögglega á þessu stóra stöðuvatni sem er það níunda stærsta í heimi,” segir Stefán Kristmannsson verkefnisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví. “Námskeiðin eru hluti af stærra verkefni um þróun smábátafiskveiða á dýpra vatni en venja hefur verið hjá malavískum fiskimönnum. Fiskirannsóknir hafa leitt í ljós ónýtta stofna á dýpra vatni en fæstir fiskimanna hafa möguleika á að nýta sér þá stofna. Það skortir betri búnað til fiskveiðanna, bæði báta og veiðarfæri. Auk þess hefur gætt ofveiði á grunnslóð vatnsins. Þróunarsamvinnustofnun vinnur nú að því með heimamönnum að þróa hentug veiðarfæri fyrir dýpra vatn,” segir Stefán.
Bæklingar um efnið voru prentaðir að sögn Stefáns bæði á ensku og útbreidda tungumálinu chichewa sem flestir Malavar skilja. Einnig hafa verið samdar tilkynningar fyrir útvarp um tilmæli um öruggar siglingar á vatninu.
Námskeiðin voru að þessu sinni haldin fyrir veiðieftirlitsmenn héraðanna við Malavívatn sem sjá um þjálfun og eftirlit fiskveiða fyrir yfirvöld. “Þeim er gert að miðla af nýju þekkingu sinnni til annarra fiskimanna við vatnið sem teljast í tugum þúsunda. Þannig þjálfa þeir fiskimenn sem erfitt getur verið að ná til og auka öryggi þeirra við veiðar. Framhald námskeiðanna er fyrirhugað til að ná til sem flestra fiskimanna í Malaví,” segir Stefán.
Tvær útskriftarhátíðir voru haldnar í bæjunum Salima 23. ágúst og Mzuzu 28. ágúst. Auk kennara voru yfirmenn fiskimála og héraðsstjóri viðstaddir. Alls voru útskrifaðir 80 veiðieftirlitsmenn, þar af fimm konur, úr héruðum umhverfis Malavíhluta vatnsins, Karonga, Rumphi, Nkhata Bay, Nkhota-kota, Salima og Mangochi, auk þess frá eyjunni Likoma.
“Veiðieftirlitsmennirnir voru hvattir af yfirmönnum sínum að láta gott af sér leiða og vera virkir í fiskisamfélögunum að kenna öðrum þessi mikilvægu öryggisatriði sem geta skipt svo miklu máli,” segir Stefán Kristmannsson í Malaví.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is