Heimsmeistaraliði Salaskóla í skólaskák boðið til Namibíu
Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Kópavogsbær hafa ákveðið að bjóða heimsmeistaraliði Salaskóla í skólaskák, ásamt tveimur fararstjórum, til Namibíu. Ferðin hefst næstkomandi miðvikudag, 12. september.
Skáksveit Salaskóla í Kópavogi vann í sumar heimsmeistaratitil í flokki 14 ára og yngri á alþjóðlegu móti grunnskólaliða sem haldið var í Tékklandi. Í sigurliðinu voru Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Petrekur Maron Magnússon, Páll Andrason, Guðmundur Kristinn Lee og Birkir Karl Sigurðsson, öll á aldrinum 11-14 ára. Þessi hópur fer til Namibíu í vikunni ásamt þjálfurum og fararstjórum liðsins, Hrannari Baldurssyni og Tómasi Rasmus.
Þróunarsamvinnustofnun hefur í samstarfi við Skáksamband Íslands og Hrókinn staðið fyrir skákverkefni meðal grunnskólabarna í Namibíu síðustu þrjú árin ásamt því að styðja við bakið á namibíska skáksambandinu og þjálfa landslið Namibíu í skák. Skákverkefninu lýkur á næstunni og því þótti við hæfi að bjóða nýju heimsmeisturunum í skólaskák frá Salaskóla í heimsókn til Namibíu.
Í ferðinni gefst íslensku sveitinni kostur á því að tefla við aðra grunnskólanemendur og taka þátt í tveimur meistaramótum ungmenna í Namibíu. Annars vegar er um að ræða keppni skólaliða og hins vegar einstaklingskeppni en bæði mótin eru haldin í Eros grunnskólanum í höfuðborginni Windhoek.
Íslenska sveitin kemur til með að ferðast talsvert um Namibíu í ferðinni og meðal annars heimsækja skóla frumbyggja, San fólksins, í grennd við bæinn Grootfontein. Á þeim slóðum er einnig búgarður þar sem íslensku krakkarnir koma til með að komast í tæri við villt dýr í “safariferð”.
Ferðinni lýkur 21. september.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is