Rannsóknarstyrkir til meistar- og doktorsnáms
Hlutverk rannsóknarstyrkja Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) er að styrkja íslenska nemendur í meistara- og doktorsnámi við háskóla til rannsóknarverkefna er snerta starfssvið stofnunarinnar. Rannsóknaverkefni skal nema að minnsta kosti 30 einingum af náminu og einkum tengjast þróunarsamvinnu á eftirtöldum sviðum:
- Sjávarútvegi
- Jarðhita
- Fullorðinsfræðslu
- Heilbrigðismálasviði
- Uppbyggingu náms á háskólasviði
- Stefnu og straumum í þróunaraðstoð
Sérstakan forgang hafa verkefnaumsóknir, sem tengjast samstarfslöndum ÞSSÍ og/eða nýst geta stofnuninni í starfsemi hennar.
Í umsókn skal að gera grein fyrir tilgangi og markmiði rannsókna, framkvæmdalýsingu ásamt tíma- og kostnaðaráætlun, leiðbeinanda og við hvaða háskóla rannsókn verður unnin.
Styrkirnir skiptast í tvennt: annars vegar rannsóknastyrki og hins vegar ferðakostnað. Reiknað er með að viðkomandi þurfi að kynna sér aðstæður í því landi sem rannsóknin miðar að.
Rannsóknastyrkirnir nema að hámarki kr.540.000 fyrir meistaraverkefni og kr. 1.080.000 fyrir doktorsverkefni. Styrkir vegna ferðakostnaðar geta numið allt að kr.250.000 og greiðast gegn framvísun staðfestra ferðareikninga.
Umsókn skal senda inn til Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands, sem hefur umsjón með styrkjunum, á sérstöku eyðublaði, sem finna má á heimasíðunni http://www.rthj.hi.is Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2004.
Nánari upplýsingar fást hjá Rannsóknaþjónustu Háskólans, s. 525 4900, netfang: rthj@hi.is og hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands, Þverholti 13, sími 545 8980.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is