Heilsugæslustöð Rauða krossins og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands opnar í Mósambík

20.11.2007

Heilsugæslustöðin afhent
Heilsugæslustöðin afhent
Á myndinni sjást Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, Ómar H. Kristmundsson formaður Rauða kross Íslands og Jóhann Pálsson, umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fagna með fulltrúum mósambískra heilbrigiðisyfirvalda og Rauða krossins í Mósambík.

Heilsugæslustöð sem Rauði krossinn og Þróunarsamvinnustofnun Íslands reistu í sameiningu í Mósambík hefur verið formlega opnuð og afhent heilbrigðisyfirvöldum í Mósambík til rekstrar.

Heilsugæslustöðin, sem er í Chibucutso í Mapútóhéraði var rúmt ár í byggingu og kostaði sem svarar rúmum 12 milljónum íslenskra króna. Hún þjónar íbúum sjö þorpa á svæðinu þar sem búa alls um 8.000 manns (Chibucutso, Xikhobyane, Mpunguene, Djasse, Nwanane, Nhambe og Rybyene). Áður þurftu íbúarnir að fara rúmlega 20 km leið eftir læknisaðstoð til næsta þéttbýlis, eftir fáförnum vegum þar sem almenningssamgöngur eru mjög strjálar.

Á stöðinni er aðstaða til almennrar heilsugæslu og meðhöndlunar á algengustu sjúkdómum, fæðingarstofa, mæðra og ungbarnaeftirlit, bólusetningar, ráðgjöf um barneignir, og önnur fyrirbyggjandi heilbrigðisfræðsla.

Fulltrúar Rauða kross Mósambík, Rauða kross Íslands og ÞSSÍ voru viðstaddir vígsluna ásamt fulltrúum mósambískra heilbrigðisyfirvalda. Síðast en ekki síst fjölmenntu íbúar Chibúcútso til að fagna þessum tímamótum ásamt þorpshöfðingjum og embættismönnum í héraði. Samkvæmt venju hófst athöfnin með "kuphahla". Þá eru andar framliðinna ákallaðir og beðnir um að blessa starfsemina sem fara mun fram í stöðinni. Þá klipptu þeir Marcelino Alexandre og Ómar Kristmundsson, formenn Rauða kross Mósambíkur og Íslands á borðann.

"Þetta er eitt dæmi um verkefni sem sýnir hvað samvinna af þessu tagi getur verið árangursrík," sagði Ómar H. Kristmundsson, formaður Rauða kross Íslands. "Þá hefur Rauði krossinn átt sérlega gott samstarf við Þróunarsamvinnustofnun varðandi þessi heilsugæsluverkefni, bæði hér í Chibocutso og í Hindane."

Samstarf landsfélaga Rauða krossins í Mósambík og á Íslandi ásamt ÞSSÍ hófst í lok árs 1999 með fyrsta heilsugæsluverkefninu í Hindane í Mapútohéraði. Ákveðið var árið 2004 að halda samstarfinu áfram og hófst verkefnið í Chibúcútso árið 2005. Rauði krossinn í Chibúcútso mun fylgja verkefninu eftir með aðstoð starfsmanna Rauða kross Mósambík og Rauða kross Íslands.

Helstu heilsufarsvandamál á svæðinu eru malaría, niðurgangur, oft vegna skorts á hreinu drykkjarvatni, vannæring og alnæmi. Ungbarnadauði er mikill og margar kvennanna hafa gengið í gegnum erfiðar fæðingar – án mikillar aðstoðar.

Mósambik er um 8x stærra en Ísland og þar búa um 20 milljónir – og um helmingur þjóðarinnar hefur enn ekki aðgang að viðunandi heilsugæslu. Víða er gríðarlega langt að fara til að fá lágmarksaðstoð og talið er enn sé einungis einn læknir fyrir hverja 30,000 íbúa.

Samstarfsaðilar þessa verkefnis hafa fullan hug á að skoða möguleika á fleiri samstarfsverkefnum af svipuðu tagi.

(Fréttatilkynning frá Rauða krossinum).





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica