Nýr sjúkrabíll afhentur í Níkaragva

22.11.2007

Sjúkrabíllinn afhentur
Sjúkrabíllinn afhentur
Guatalupe, forseti Rauða krossins í Camoapa og Maria, sjúkrabílstjóri, fá nýja bílinn afhentan.
Mynd 1 af 2
1 2

"Sveitarfélagið er stórt, samgöngur erfiðar og talsverð vegalengd á næsta spítala. Sjúkrabíllinn á því eftir að koma að góðum notum," segir Gerður Gestsdóttir verkefnastjóri félagslegra verkefna Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Níkargva. Gerður afhenti forseta Rauðakrossdeildar í borginni Camoapa glænýjan sjúkrabíl á dögunum fyrir hönd ÞSSÍ.

"Guatalupe Calero, forseti Rauða krossdeildar Camoapa, hefur barist fyrir því í fimmtán ár að fá sjúkrabíl í sveitarfélagið," segir Gerður. "Íbúarnir hafa stutt hann í þessari baráttu og það var því mikill gleðidagur í Camoapa þegar þeim var færður glænýr Land Rover sjúkrabíll, árgerð 2008."

Að sögn Gerðar er þörfin fyrir sjúkrabíl á þessu svæði augljós. Hún nefnir sem dæmi að sama dag og bíllinn var afhentur hafi tvisvar þurft að nota hann til sjúkraflutninga. Gerður segir að auk þess að nýtast íbúum sveitarfélagsins komi bíllinn að sérstaklega góðum notum fyrir konurnar í mæðrahúsinu, sem Rauði krossinn rekur og ICEIDA (Þróunarsamvinnustofnun) fjármagnaði bygginguna á. Það séu konur úr dreifbýlinu sem eru í áhættumeðgöngu og oft þurfti að flytja þær í skyndi á heilsugæslu eða sjúkrahús.

Íbúar Camoapa eru um fjörutíu þúsund talsins. Þar eru atvinnuleysi hæst í Níkaragva, 52%.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica