Afrísk stemmning í Norræna húsinu næsta sunnudag

22.11.2007

Bókakynning
Bókakynning
Ný íslensk bók um Afríku sunnan Sahara kynnt í Norræna húsinu á sunnudag.

Sunnudaginn 25. nóvember kl. 16:00 stendur félagið Afríka 20:20 fyrir kynningu í Norræna húsinu á bókinni "Afríka sunnan Sahara í brennidepli". Bókin kom út í haust og er ætlað er auka almennan fróðleik og skilning á álfunni, sögu hennar og samtíma.

Tólf höfundar skrifa kafla í bókina og munu nokkrir þeirra kynna sjónarhorn sín auk þess sem sýndar verða ljósmyndir frá álfunni.

Sérstakir gestir verða meðlimir hljómsveitarinnar Super Mama Djombo frá Gíneu Bissá sem munu leika nokkur lög. Hljómsveitin er þekktasta hljómsveit landsins og hefur þegar vakið athygli þar sem hún hefur komið fram á Íslandi. Þetta er því einstakt tækifæri fyrir almenning til að berja hljómsveitina augum og njóta tónlistar hennar.

Aðgangur er ókeypis.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica