Fjórða mæðrahúsið tekið í notkun í Níkaragva

27.11.2007

Tvær barnshafandi
Tvær barnshafandi
Tvær ungar barnshafandi stúlkur í mæðrahúsi í Níkaragva.

Fjórða mæðrahúsið á þessu ári sem byggt er fyrir íslenskt fjármagn í Níkaragva var formlega tekið í notkun á dögunum. Mæðrahúsið er í borginni Juigalpa í miðhluta Níkaragva. Kvennasamtök í borginni hafa tekið að sér rekstur hússins í sjálfboðavinnu.

"Mæðrahúsið í Juigalpa mun þjóna mjög stóru svæði þar sem í borginni er starfandi sjúkrahús," segir Gerður Gestsdóttir verkefnastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í félagslegum málum í Níkaragva.

"Þetta hús, eins og hin, er heimili þar sem konur úr strjálbýlinu geta búið á síðustu vikum meðgöngunnar og fengið læknisþjónustu sem annars stæði þeim ekki til boða," bætir hún við. Hátt í sextíu mæðrahús eru nú rekin í Níkaragva en þangað er sendar þær konur sem eru í áhættumeðgöngu og hafa ekki öruggt aðgengi að læknisþjónustu í nágrenni við heimili sitt. "

Í mæðrahúsunum fá konurnar læknisheimsókn tvisvar á dag og þær geta síðan fætt undir eftirliti fagfólks. Í mæðrahúsinu geta þær svo verið meðan þær safna kröftum til að snúa heim aftur. Tilgangurinn með mæðrahúsunum er að draga úr mæðra- og ungbarnadauða, sem er mjög algengur í Níkaragva," segir Gerður.

Í Juigalpa hafa kvennasamtök tekið að sér rekstur hússins og þau störf verða unnin í sjálfboðavinnu. Einnig hafa verið stofnuð samtökin "Vinir mæðrahússins" en í þeim eru að sögn Gerðar málsmetandi fólk úr borginni og yfirsetukonur.

Við setningarathöfnina var fjöldi ræðumanna en aðeins ein kona, fulltrúi Þróunarsamvinnustofnunar. Aðrir ræðumenn voru frá heilbrigðisyfirvöldum héraðsins, heilsugæslunni, kirkjunni og nýstofnuðu borgararáði Juigalpa.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica