Heyrnarlausir táknmálskennarar útskrifaðir í fyrsta sinn í Namibíu
Heyrnarlausir táknmálskennarar voru í fyrsta sinn útskrifaðir í Namibíu í gær eftir þriggja mánaða námskeið sem haldið var á vegum Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Íslensku stofnanirnar vinna sameiginlega að þriggja ára þróunarverkefni, sem kallast Táknin tala, í samvinnu við yfirvöld menntamála í Namibíu.
Á námskeiðinu kenndi Júlía G. Hreinsdóttir tíu heyrnarlausum nemendum aðferðir við kennslu táknmáls fyrir heyrandi fólk. Einnig kenndi hún málfræði táknmáls, menningu og sögu heyrnarlausra og kennslu leikskólabarna. Rúmlega þriðjungur námskeiðsins var verklegur, þar sem tilvonandi táknmálskennarar spreyttu sig á kennslu, undir styrkri leiðsögn Júlíu.
Að sögn Vilhjálms Wiium, umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar starfa nýju táknmálskennararnir hjá fjórum stofnunum í Namibíu. “Í útskriftarathöfninni fengu þessar fjórar stofnanir afhentar kennslubækur um táknmál, en mikill skortur er á námsefni fyrir heyrnarlausa í Namibíu,” segir Vilhjálmur. “Ráðuneytisstjóri menntamála í Namibíu, Iita Vitalis Ankama, var viðstaddur útskrifina og hann lýsti í ræðu mikilli ánægju með það átak sem nú á sér stað í fræðslumálum heyrnarlausra í Namibíu. Þar í landi eru yfir átján þúsund heyrnarlausir og af þeim um helmingur undir fimmtán ára aldri. Hins vegar eru einungis milli þrjú og fjögur hundruð heyrnarlausir sem sækja skóla og því gríðarlega margir heyrnarlausir sem fá enga menntun. „Þið getið allt sem þið viljið,” voru lokaorðin í ræðu ráðuneytisstjóra og skýr skilaboð til heyrnarlausra,” segir Vilhjálmur.
Á næsta ári mun Júlía tvisvar sækja Namibíu heim og halda áfram kennslu heyrnarlausra táknmálskennara. Einnig mun Samskiptamiðstöðin senda túlkakennara til Namibíu, en mikill skortur er á táknmálstúlkum.
Á myndinni sést Júlía, lengst til vinstri, ásamt fyrsta útskriftarhópnum.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is