Samstarfssamningur milli Landhelgisgæslu Íslands og Mælingarstofnunar Malaví
Fréttatilkynning frá skrifstofu ÞSSÍ í Malaví
Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands Hafsteinn Hafsteinsson og Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands undirrituðu 21. mars samstarfssamning við Mælinga- og kortagerðarstofnun Malaví um þríhliða samstarf um mælingar á Malavívatni. Samkvæmt samningnum annast Landhelgisgæslan faglega ráðgjöf og tækniaðstoð í verkefni sem framkvæmt er af Mælingastofnun Malaví með fjárstuðningi og undir eftirliti frá ÞSSÍ. Samningurinn gildir til ársloka 2004.
Verkefni þetta hefur verið í gangi síðan í ársbyrjun 2001 á grundvelli tvíhliða samnings milli ÞSSÍ og Mælingastofnunar Malaví, en nú hefur verið stigið einu skrefi lengra með sérstökum stofnanasamningi og þar með breyttu hlutverki ÞSSÍ. Slíkir samningar, þar sem stofnanir og fyrirtæki taka að sér faglegan þátt verkefna fyrir hönd þróunarstofnana, eru algengir meðal margra annarra þróunarstofnana en þessi samningur er einn sá fyrsti sinnar tegundar í sögu ÞSSÍ.
Samhliða undirritun samningsins voru fyrstu tvö kortin af Malavívatni kynnt fyrir hagsmunaaðilum í Malaví við hátíðlega athöfn. Miklar vonir eru bundnar við að kortin eigi eftir að auka verulega öryggi í siglingum á vatninu. Kortin munu verða 27 talsins og er vinna við þau vel á veg komin.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is