Nýtt samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Eþíópíu

7.1.2008

Aðgangur að hreinu vatni
Aðgangur að hreinu vatni
Tryggja á 25 þúsund íbúum í 10 sýslum aðgang að hreinu vatni til neyslu, ræktunar og skepnuhalds.

Hjálparstarf kirkjunnar og Þróunarsamvinnustofnun Íslands hafa ákveðið að verja sameiginlega 75 milljónum íslenskra króna til þriggja ára verkefnis í einu fátækasta héraði Eþíópíu. Verkefnið er það stærsta í sögu Hjálparstarfs kirkjunnar.

Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Jónas Þ. Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar undirrituðu á dögunum samstarfssamning um verkefnið en kostnaðaráætlun hljóðar upp á rúmlega eina milljón Bandaríkjadala. Þróunarsamvinnustofnun leggur til 60% fjárins og Hjálparstarf kirkjunnar 40%.

Verkefnið er að sögn Lydíu Geirsdóttur verkefnastjóra hjá Hjálparstarfi kirkjunnar þróað og undirbúið í nánu samstarfi við íbúa og einnig skipulagt samkvæmt forgangsröðun stjórnvalda í Eþíópíu og Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Framkvæmdar- og ábyrgðaraðili verkefnisins er samstarfsaðilar Hjálparstarfsins, lúterska kirkjan og deild hennar í Eþíópíu. “Bæði þessi samtök hafa gríðarlega reynslu af þróunaraðstoð í Eþíópíu og byggja aðallega á þekkingu heimamanna,” segir Lydía. Hún segir að verkefnið verði unnið í einu fátækasta héraði landsins, Jijiga héraði í Sómalifylki í austurhluta landsins, þar sem íbúar séu um 230 þúsund talsins. Hún bætir við að ríkisstjórn Eþíópíu hafi sett fylkið í forgang varðandi stofnun þróunarverkefna.

“Eþíópía er sjötta fátækasta land heims með um 74 milljónum íbúa,” segir Lydia. “Einungis 30% landsmanna hafa aðgang að hreinu vatni sem þýðir að meira en 50 milljónir manna njóta ekki þeirra mikilvægu mannréttinda að hafa aðgang að hreinu vatni.”

Megin markmið verkefnisins eru fimm:

1.      Að tryggja íbúum aðgang að hreinu vatni til neyslu, ræktunar og skepnuhalds með því að byggja vatnsgeyma/vatnsþrær.

2.      Að styrkja landbúnað með bættum ræktunaraðferðum og efla skepnuhald.

3.      Að efla efnahagslegt öryggi og réttindi kvenna.

4.      Að bæta heilbrigðisstöðu íbúa með stofnun heilsugæslustöðvar og fræðslu um HIV/AIDS smit.

5.      Að styrkja innviði og stjórnkerfi samfélagsins.

Heildarverkefnið mun nýtast öllum íbúum Jijiga héraðs og sá hluti verkefnisins sem snýr að vatnsöflun mun tryggja 25 þúsund íbúum í 10 sýslum aðgang að hreinu vatni til neyslu, ræktunar og skepnuhalds.

ÞSSÍ og Hjálparstarf kirkjunnar eru einnig í mjög farsælu samstarfi í Malaví, Mósambík og Úganda. 





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica