Fiskimannasamfélag á Srí Lanka fær afhenta þjónustumiðstöð

8.1.2008

Frá athöfninni
Frá athöfninni
Þjónustumiðstöðin í Ulhitiya var afhent við hátíðlega athöfn að kvöldi til. Þjónustumiðstöðin lengst til hægri á myndinni. Ljósmynd: Gunnar Þórðarson.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur á síðustu mánuðum afhent fjórar þjónustumiðstöðvar við löndunarstaði á Srí Lanka en byggingarnar eru hluti af þróunaraðstoð við fiskimannasamfélög á eyjunni. Kvenfélög hafa í auknum mæli tekið að sér rekstur miðstöðvanna.

Á dögunum var afhent þjónustumiðstöð í Ulhitiya, sú fjórða af tuttugu og fimm sambærilegum miðstöðvum sem reistar eru á vegum Þróunarsamvinnustofnunar. "Það virðist ríkja mikil sátt um þá rástöfun að hafa reksturinn í höndum kvenna, ekki síst meðal sjómannanna," segir Gunnar Þórðarson verkefnastjóri ÞSSÍ í fiskimálum Srí Lanka. "Þeir geta þá einbeitt sér að veiðunum sem er undirstöðu tekjuöflunar og framfærslu á þessum svæðum," bætir hann við. Í þjónustumiðstöðvunum er aðstaða fyrir skrifstofu samvinnufélags fiskimanna, aðstaða fyrir fundahöld, skrifstofa veiðieftirlitsmanns og rými fyrir veiðarfæraaðgerðir. Í byggingunni er neysluhæft drykkjarvatn, rafmagn og salernisaðstaða.

Öflug frjáls félagasamtök á Srí Lanka sem nefnast Sewalanka hafa í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun tekið að sér að vinna með íbúum fiskimannasamfélaganna að nýtingu á þjónustumiðstöðvunum, styðja íbúana til sjálfshjálpar og styrkja innviði og mannauð samfélaganna. "Afhendingin á miðstöðinni í Ulhitya fór fram við hátíðlega athöfn að kvöldi til og tilefnið notað til allsherjar hátíðahalda fyrir fiskimannasamfélagið allt," segir Gunnar.

Formaður kvenfélagsins, Deva Matha Sewa, tók formlega við rekstri þjónustumiðstöðvarinnar að viðstöddum fulltrúa ÞSSÍ, aðstoðarráðherra fiskimála á Sri Lanka, ráðherra fiskimála héraðsins, fulltrúa samvinnufélags fiskimanna í þorpinu ásamt fulltrúa Sewalanka. "Íbúarnir hafa miklar væntingar til miðstöðvarinnar, ekki síst til fundaaðstöðunnar, sem gerir þeim kleift að koma saman og ræða sameiginleg hagsmunamál. Slíkt er forsenda sameiginlegra ákvarðana um uppbyggingu samfélagsins sem gætu leitt til aukinna lífsgæða fyrir íbúana," segir Gunnar.

Aðstoðarráðherra fiskimála á Sri Lanka, Neomal Perera, notaði tækifærið við athöfnina til að ganga frá ýmsum viðskiptum við fiskimenn þorpsins. Vegna öryggisreglna sjóhersins í landinu er að sögn Gunnars óleyfilegt að nota öflugri utanborðsvélar en 25 hestöfl við strandveiðar á Sri Lanka. Margir sjómenn hafa hins vegar fjárfest í allt að 40 hestafla vélum og þeim bauðst því að skipta á nýjum löglegum mótor fyrir þann gamla.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica