Vígsla fræðsluseturs á Sseyjum í Úganda

1.7.2004

Þann 24. júní var nýbygging fræðsluseturs á Sseyjum vígð við hátíðlega athöfn, en setrið er hluti samvinnuverkefnis ÞSSÍ og héraðsstjórnar eyjanna um fullorðinsfræðslu.  Einnig var vígð heimavistarbygging fyrir stúlkur við Kitetika framhaldsskólann skammt fyrir utan Kampala.  ÞSSÍ styrkti bygginguna en samtökin sem reka skólann eru einnig náinn samstarfsaðili ABC hjálparstarfs á Íslandi.

Notað var tækifærið þegar sendinefnd Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) var á ferð í Úganda 20. - 25. júní , en þar starfrækir stofnunin þrjú megin verkefni; á sviði fullorðinsfræðslu, fiskimála og jarðhita rannsókna.  Sendinefndin, undir forystu Björns Inga Hrafnssonar, stjórnarformanns ÞSSÍ, kynnti sér framgang verkefnanna og hélt fundi með helstu samstarfsaðilum stofnunarinnar. 

Á meðan á heimsókn íslensku sendinefndarinnar stóð, var einnig fundað með ráðherrum utanríkis- og fiskimála, en frá Úganda lá leið sendinefndarinnar til Malaví.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica