Þróunarsamvinnustofnun: Mest áhersla á menntamál á árinu
Samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun ársins 2008 verða menntamál fyrirferðarmest í starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar á árinu í sex samstarfslöndum stofnunarinnar. Rúmlega fjórðungi af fjármagni ÞSSÍ til þróunarsamvinnu verður varið til verkefna á sviði menntamála. Til fiskimála verður varið tæplega fimmtungi.
Þróunarsamvinnustofnun vinnur að tvíhliða þróunarsamvinnu með fjórum ríkjum í Afríku, Malaví, Mósambík, Úganda og Namibíu, auk Níkaragva í Mið-Ameríku og Srí Lanka í Suður-Asíu. Til skamms tíma var mestu fjármagni varið til verkefna í sjárvaútvegi og fiskimálum en á síðustu árum hefur verkefnum af félagslegum toga fjölga, ekki síst á sviði menntamála. Nú er svo komið að menntamálin taka til sín stærsta hluta fjármagnsins.
Malaví verður áfram stærsta samstarfsland Þróunarsamvinnustofnunar og fær í sinn hlut rúmlega 22% heildarfjárins samkvæmt áætluninni. Mósambík er annað stærsta landið, með rúm 15%, þá koma Níkaragva og Úganda með um 12% hvort land, því næst Namibía með tæp 10% og Srí Lanka með tæp 9%.
Alls verður samkvæmt fjárhagsáætluninni varið tæplega hálfum öðrum milljarði ísenskra króna til þróunarsamvinnu á vegum stofnunarinnar á þessu ári. ÞSSÍ ráðstafar rúmlega þriðjungi af opinberu fé sem varið er til þróunarmála.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is