Þróunarsamvinnustofnun fjármagnar byggingu tuttugu skólastofa í Níkaragva
Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ákveðið að fjármagna og búa húsgögnum tuttugu skólastofur í níu grunnskólum í tveimur sveitarfélögum á Atlantshafsströnd Níkaragva, Bluefields og Puerto Cabezas. Um er að ræða þríhliða samstarfssamning ÞSSÍ, menntamálaráðuneytis Níkaragva (MINED) og hvorrar sveitarstjórnar um sig.
“Núverandi ríkisstjórn, sem komst til valda í janúar 2007 leggur mikla áherslu á menntun fyrir alla og hennar fyrsta verk var að gera grunnskólann gjaldfrjálsan, en það hafði hann ekki verið í mörg ár,” segir Gerður Gestsdóttir verkefnisstjóri félagslegra verkefna í Níkaragva. “Á árinu 2007 fjölgaði því börnum sem sóttu grunnskóla og þá sérstaklega á þeim svæðum þar sem skólasókn var hvað lökust fyrir, svo sem á Atlantshafsströndinni. Menntamálayfirvöldum hefur enn ekki tekist af mæta eftirspurn eftir grunnskólabyggingum og hvað síst á þeim slóðum sem fellibylurinn Felix fór yfir í september 2007, en talið er að um 90% allra skóla í Puerto Cabezas hafi orðið fyrir skemmdum,” segir hún.
Framlag ÞSSÍ, sem er um 80% af heildarkostnaði við verkið verður greitt til sveitarstjórnanna sem sjá svo um að ráða verktaka til verksins. Framkvæmd verkefnisins verður í höndum menntamálaráðuneytisins sem leggur til 20% mótframlag í verkefnið. Mótframlagið felst í vinnuframlagi en ÞSSÍ mun gegna eftirlitshlutverki út samstarfstímabilið. Áætlað er að bygging skólastofanna taki sex mánuði.
Gerður segir að samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðuneytinu muni rúmlega 3.700 börn njóta góðs af byggingu þessara tuttugu skólastofa. Hún segir að öll börnin í skólunum níu muni njóta góðs af verkefninu, því minnkuð þrengsli og betri aðstaða komi þeim öllum til góða.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is