Tvær þjónustumiðstöðvar afhentar á Srí Lanka
Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti í þessum mánuði tvær þjónustumiðstöðvar við löndunarstaði til fiskimannasamfélaga á Srí Lanka, annars vegar í Beruwalla á suðvesturströndinni og hins vegar í Nilwella á suðurodda eyjunnar.
“Í verkefninu um löndunarstöðvar er áhersla lögð á að byggja upp innviði og skipulag fiskveiðsamfélaga í samvinnu við innlendu frjálsu félagasamtökin Sewalanka til auka getu íbúa til uppbyggingar samfélagsins og bæta lífsgæði íbúa,” segir Gunnar Þórðarson verkefnastjóri ÞSSÍ á Srí Lanka.
Þjónustumiðstöðin er að sögn Gunnars hugsuð sem kjarni samfélagsins þar sem íbúar geta notað aðstöðuna m.a. til fundahalda og sem stjórnstöð samvinnufélags fiskimannasamfélagsins. “Samvinnufélagið gefur möguleika á örlánum þar sem það gengur í ábyrgð fyrir einstaklinga sem vilja fjárfesta í framleiðsluþáttum eða þjónustu, hvort heldur um er að ræða kaup á mótor á fiskibát eða stofnun verslunar til þjónustu fyrir samfélagið. Einnig hafa verið hugmyndir uppi um að nota húsnæði fyrir leikskóla, bókasafn ásamt ýmiss konar félagsstarfi,” segir Gunnar.
Í Nilwella var stjórnvöldum á Sri Lanka færð að gjöf loftskeytastöð sem er öryggisatriði fyrir útilegubáta sem gerðir eru út frá staðnum. Svæðið varð mjög illa úti í flóðbylgjunni 2004 en þá gjöreyðilagðist m.a. loftskeytastöð. Frá Nilwella eru gerðir út 67 útilegubátar og loftskeytastöðin er líflína sjómanna til lands.
Bæði í Beruwalla og Nilwella var mikið um að vera þegar ICEIDA afhenti þjónustumiðstöðvarnar. Viðstaddir voru fulltrúar frá stjórnvöldum á Sri Lanka, héraðstjórn svæðissins, fulltrúum fiskimannasamfélaganna ásamt fulltrúa frá Sewalanka.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is