Götuóeirðir í Mósambík vegna verðhækkana á fargjöldum strætisvagna
Til óeirða kom í morgun í ýmsum borgum Mósambík, meðal annars í höfuðborginni Maputo, þegar þúsundir mótmæltu á götum úti verðhækkun á fargjöldum strætisvagna. Löglegra beitti táragasi og skaut gúmmíkúlum að mótmælendum. Lögregla hefur staðfest að einn hafi látið lífið í óeirðunum.
“Þetta er ekki alvarlegt ástand enn sem komið er,” segir Jóhann Pálsson umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar í Mósambík. “Það amar ekkert að þeim Íslendingum sem okkur er kunnugt um að séu í landinu.”
Jóhann segir að mótmælin hafi byrjað í morgun og frést hafi af óeirðum víða um borgina. “Gengið var um í hópum um margar aðalgötur borgarinnar og steinum hent í bifreiðar og hjólbarðar brenndir. Þykkur reykjarmökkur lá yfir miðborginni og skothríð heyrðist. Lætin munu þó hafa verið mun meiri í fátæktarhverfum borgarinnar,” segir Jóhann.
Búist er við áframhaldandi mótmælum í Mósambík.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is