Styrkir auglýstir til meistara- og doktorsnáms
Tveir styrkir til doktorsnáms og tveir til meistaranáms
Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms á starfssviði stofnunarinnar. Að þessu sinni verða veittir tveir styrkir til doktorsnáms og tveir til meistaranáms.
Hlutverk rannsóknastyrkja Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) er að styrkja íslenska nemendur í meistara- og doktorsnámi við háskóla til rannsóknaverkefna er snerta starfssvið stofnunarinnar. Rannsóknaverkefni skal nema að minnsta kosti 15 einingum af náminu og einkum tengjast þróunarsamvinnu á eftirtöldum sviðum:
- Sjávarútvegi
- Jarðhita
- Menntamálum
- Heilbrigðismálum
- Vatns- og hreinlætismálum
- Stefnu og straumum í þróunarsamvinnu
Sérstakan forgang hafa verkefnaumsóknir, sem tengjast samstarfslöndum ÞSSÍ og/eða nýst geta stofnuninni í starfsemi hennar.
Í umsókn skal gera grein fyrir tilgangi og markmiði rannsókna, framkvæmdalýsingu ásamt tíma- og kostnaðaráætlun, leiðbeinanda og við hvaða háskóla rannsóknin verður unnin.
Styrkirnir skiptast í tvennt: annars vegar rannsóknastyrki og hins vegar ferðakostnað. Reiknað er með að viðkomandi þurfi að kynna sér aðstæður í því landi sem rannsóknin miðar að.
Rannsóknastyrkirnir nema að hámarki kr.700.000 fyrir meistaraverkefni og kr. 1.400.000 fyrir doktorsverkefni. Styrkir vegna ferðakostnaðar geta numið allt að kr.250.000 og greiðast gegn framvísun staðfestra ferðareikninga.
Umsókn skal senda inn til Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands, sem hefur umsjón með styrkjunum, á sérstöku eyðublaði, sem finna má á heimasíðu Rannsóknaþjónustunnar.
Umsóknarfrestur er til 17. mars 2008.
Nánari upplýsingar fást hjá Rannsóknaþjónustu Háskólans, s. 525 4900, netfang: rthj@hi.is og hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands, s. 545 8980, netfang: iceida@iceida.is.
Sjá ennfremur auglýsingu sem birtist í dagblöðum.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is