Undirritun rammasamnings milli ÞSSÍ og Háskólans á Akureyri

6.9.2004

Í dag undirritaði Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður ÞSSÍ, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, rammasamning um samstarf sem tengist samvinnu og aðstoð við þróunarlöndin. Markmið samstarfsins er að efla með markvissum hætti þátttöku Háskólans á Akureyri í verkefnum á sviði þróunaraðstoðar á vegum ÞSSÍ og stuðla að aukinni þekkingu og fræðslu um þróunarsamvinnu.  Samningurinn gildir til ársloka 2007. 

Það er stefna ÞSSÍ að auka markvisst samstarf við íslenskar rannsókna- og kennslustofnanir. Á síðasta ári var undirritaður rammasamningur milli ÞSSÍ og Háskóla Íslands sem kveður á um samvinnu stofnanna um kennslu og rannsóknarverkefni, auk samstarfs um skipulagningu ráðstefna og fræðslufunda um þróunarmál. Það rannsókna-, fræða- og kennslustarf sem felst í samstarfi við rannsókna- og kennslustofnanir er mikilvægur stuðningur við markvissan undirbúning þróunarverkefna og árangursríkt starf í samstarfslöndum, og er auk þess mikilvægur liður í skipulagðri upplýsinga- og kynningarstarfsemi ÞSSÍ.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica