Auglýst eftir fimm starfsnemum til samstarfslanda Þróunarsamvinnustofnunar

25.2.2008

Auglýst eftir starfsnemum
Ríkisstjórnir hvattar til hvika ekki frá yfirlýstum stuðningi við fátæk ríki.
Myndin er af skólabörnum í Mapútó, höfuðborg Mósambík, sem er eitt af sex samstarfslöndum Íslands. Ljósm. Gunnar Salvarsson.

Auglýst hefur verið eftir ungu háskólafólki til starfa í samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Um er að ræða fimm mánaða starfsþjálfun í tengslum við verkefni ÞSSÍ í fimm samstarfslöndum, Malaví, Úganda, Namibíu, Mósambík og Níkaragva. Starfsnemarnir sem valdir verða halda utan í byrjun júlí og koma heim í byrjun desember.

Mikill áhugi er jafnan fyrir störfum starfsnema Þróunarsamvinnustofnfunar og á síðasta ári sóttu um tvö hundruð ungmenni um störfin. Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunnnámi í háskóla og vera yngri en 32 ára.

Leitað er eftir mismunandi menntun starfsnema eftir verkefnum í hverju landi, t.d. er sóst eftir umsækjanda með menntun á sviði félagsvísinda með þekkingu á aðferðafræði rannsókna til Malaví en leitað eftir umsækjanda með menntun á sviði hagfræði, þróunarfræði eða þróunarhagfræði til Úganda.

Umsóknarfrestur er til 26. mars en allar nánari upplýsingar á vef Hagvangs, www.hagvangur.is

Auglýsing Hagvangs.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica