Nýir starfsmenn til Malaví og Namibíu
Tveir nýir starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands eru þessa dagana að taka við störfum í Malaví og Namibíu. Annars vegar er um að ræða starf læknis sem hefur það hlutverk að veita sérfræðiráðgjöf í Monkey Bay í Malaví og hins vegar starf verkefnastjóra félagslegra mála í Namibíu.
Guðbrandur Þorkelsson heilsugæslulæknir í Grafarvogi er þegar farinn utan en hans hlutverk í Malaví verður að veita ýmiss konar ráðgjöf við uppbyggingu og rekstur sjúkrahússins í Monkey Bay við samnefndan flóa í sunnanverðu landinu. Sjúkrahús var byggt þar fyrir íslenskt þróunarfé fyrir nokkrum árum og heilbrigðisstarfsfólk frá Íslandi hefur unnið að uppbyggingu heilbrigðisþjóustunnar í læknishéraðinu mörg undanfarin ár.
Davíð Bjarnason mannfræðingur heldur til Namibíu á næstu dögum þar sem hann tekur við starfi verkefnastjóra félagslegra mála á vegum Þróunarsamvinnustofnunar. Margvísleg verkefni af félagslegum toga er unnin í landinu fyrir íslenskt fjármagn, m.a. verkefni um bætt menntaskilyrði heyrnarlausra barna, vatns- og beitistjórnunarverkefni meðal Himba þjóðflokksins og stuðningur við uppbyggingu leikskóla fyrir San þjóðflokkinn er í undirbúningi.
Davíð er kunnugur í Namibíu en meistaraprófsritgerð hans í auðlinda- og umhverfisfræðum fjallaði um samþættingu félagslegrar uppbyggingar og auðlindastjórnunar í sveitahéruðum Namibíu og byggði á vettvangsrannsókn í Kunene héraði. Davíð lauk á síðasta ári doktorsprófi í mannafræði frá Háskóla Íslands.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is