Staða og hlutverk Þróunarsamvinnustofnunar óbreytt samkvæmt nýju frumvarpi

28.2.2008

Óbreytt staða Þróunarsamvinnustofnunar
Óbreytt staða Þróunarsamvinnustofnunar
Þróunarsamvinnustofnun Íslands verður áfram sérstök undirstofnun utanríkisráðuneytis. Ljósmynd frá Malaví: Gunnar Salvarsson.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að staða og hlutverk Þróunarsamvinnustofnunar Íslands verði óbreytt en að sérstök lög um stofnunina frá 1981 falli úr gildi.

Þróunarsamvinna er vaxandi þáttur í íslenskri utanríkisstefnu og stærsti einstaki útgjaldaliður utanríkisráðuneytisins, að því er fram kom í máli utanríkisráðherra. Ingibjörg sagði að nýir hornsteinar íslneskrar utanríkisstefnu væru mannréttindi, aukin þróunarsamvinna og friðsamleg lausn deilumála. Aukin framlög og virkari þátttaka í alþjóðlegri þróunarsamvinnu væru liður í því að uppfylla skyldur Íslands í samfélagi þjóðanna með markvissum hætti.

Ingibjörg Sólrún sagði að frumvarpið fæli í sér fyrstu heildarlöggjöf um alla opinbera þróunarsamvinnu Íslendinga og með því væri lagður grunnur að nýju heildstæðu stjórnkerfi í málaflokknum og um leið gegnsærri og ábyrgari stjórnsýslu.

Í frumvarpinu er lagt til það nýmæli að utanríkisráðherra leggi annað hvert ár fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi um áætlun stjórnvalda um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands til fjögurra ára í senn. Ennfremur er það nýmæli í frumvarpinu að fimmtán manna samstarfsráð verði skipað af ráðherra til fjögurra ára í senn sem verði ráðgefandi stjórnsýslunefnd fyrir ráðherra við stefnumörkun. Samstarfsráðið kæmi saman tvisvar á ári.

Frumvarpið felur í sér að staða Þróunarsamvinnustofnunar sem undirstofnunar utanríkisráðuneytis verður óbreytt og það hlutverk ÞSSÍ að sinna eingöngu tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands í umboði utanríkisráðherra er einnig óbreytt. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir sérstakri stjórn Þróunarsamvinnustofnunar en komið á fót stýrihópi sem hefði það hlutverk að sinna m.a. faglegri stefnumótun, eftirliti með daglegri framkvæmd og reksti. Stýrihópurinn yrði undir stjórn ráðuneytisstjóra en í honum ættu sæti, samkvæmt frumvarpinu, framkvæmdastjóri ÞSSÍ, sviðsstjóri á þróunarsamvinnusviði ráðuneytisins og skrifstofustjórar á skrifstofu þróunarmála og Íslensku friðargæslunnar.

Fraumvarpið og greinargerðin eru á vef Alþingis.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica