Formleg afhending á sjúkrabíl í Níkaragva
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur og stjórnarmaður í Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti á dögunum Rauðakrossdeild borgarinnar Camoapa í Níkaragva nýjan sjúkrabíl. Bíllinn var afhentur í fyrstu vettvangsferð fullrúa stjórnar ÞSSÍ og framkvæmdastjóra til Níkaragva en Íslendingar tóku upp þróunarsamvinnu við þetta fátækasta ríki Mið-Ameríku á árinu 2006.
Meðal fyrstu félagslegu verkefna Íslendinga í landinu er stuðningur við Mæðrahús í strjálbýli en slík hús er byggð í grennd við sjúkrahús sem þjóna stórum dreifbýlum svæðum. Mæðrahúsin eru sérstaklega ætluð konum fyrir og eftir fæðingu, einkum þeim sem eru í áhættu af ýmsum ástæðum. Sjúkrabíllinn í Camoapa nýtist ekki síst verðandi mæðrum í Mæðrahúsinu sem þurfa oft með litlum fyrirvara að fara á sjúkrahúsið í sveitarfélaginu.
Í tilefni af afhendingu sjúkrabílsins var efnt til hátíðar við Mæðrahúsið þar sem fluttar voru þakkarræður og stúlkur sýndu þjóðdansa. Í forföllum kaþólska sóknarprestsins fór séra Hjálmar með bænarorð og allir viðstaddir tóku undir Faðirvorið á móðurmáli sínu.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is