Nýtt verkefni um bætta stjórnun beitarlands á Himbasvæðum

5.3.2008

Unnið gegn eyðingu beitarlands
Unnið gegn eyðingu beitarlands
Himbar er ættbálkur hirðingja og frumbyggja í norðurhluta Namibíu. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ákveðið að styðja þjálfunarverkefni í Namibíu sem hefur það markmið að bæta nýtingu beitarlands hjá Himbaættbálkinum í norðvesturhluta landsins. Verkefnið spannar þrjú ár og fellur vel að öðru íslensku verkefni í þágu Himba sem unnið er á sama tíma og lýtur að borun og byggingu 33 vatnsbrunna.

Vilhjálmur Wiium umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar í Namibíu segir að frjáls félagasamtök á sviði umhverfisverndar og byggðaþróunar hafi leitað samstarfs um bætta beitarstjórnun á svæðinu. "Þessi samtök hafa um nokkurt skeið unnið með nokkrum samfélögum Himbafólks með það fyrir augum að græða á nýjan leik beitarlönd sem farið hafa illa á undanförnum áratugum," segir Vilhjálmur. "Eyðing beitarlands fylgir því miður oft í kjölfar nýrra vatnsbrunna og samtökin vinna að því að snúa þeirri þróun við. Starfið snýst um að rifja upp gamlar beitiaðferðir sem núverandi kynslóð hjarðmanna virðist hafa glatað."

Að sögn Vilhjálms verður framlag Íslendinga nýtt til að aðstoða tvö samfélög Himba við að bæta beitarstjórnun en stafið felst fyrst og fremst í þjálfun hjarðmanna, eftirfylgni og stuðningi við þá. Heildarframlag Íslands á þremur árum verður 130 þúsund Bandaríkjadalir.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica