Formleg afhending hluta stjórnsýslubyggingar í Mukono héraði í Úganda
Ágústa Gísladóttir umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda afhenti á dögunum við hátíðlega athöfn fullbúna fyrstu hæð í stjórnsýslubyggingu Mukono héraðs. Framlag Íslendinga til byggingarinnar er einn af mörgum verkþáttum fullorðinsfræðsluverkefnis ÞSSÍ í héraðinu en það nær til tveggja eyjaklasa á Viktoríuvatni.
Á fyrstu hæð stjórnsýslubyggingarinnar eru skrifstofur héraðsstjóra og félagsmáladeild hérðasins. Lilja Dóra Kolbeinsdóttir verkefnisstjóri fullorðinsfræðsluverkefna ÞSSÍ í Úganda segir að eitt af megin markmiðum verkefnisins í Mukono héraði sé að auka getu félagsþjónustunnar til að framkvæma áætlun um fullorðinsfræðslu í fiskimannasamfélögum á Buvuma og Koome eyjum. "Starfsmenn félagsmáladeildarinnar hafa hingað til unnið við mjög bágbornar aðstæður og úrbæturnar á starfsaðstöðunni eru því kærkomnar," segir Lilja Dóra. Hún bendir á að félagsþjónustudeildir í héruðum landsins séu ein af burðarstoðum stjórnvalda í aðgerðaáætlun um jafnréttismál og útrýmingu fátækar.
Við afhendingu á nýja húsnæðinu fékk Þróunarsamvinnustofnun og íslenska þjóðin þakkarskjöld frá héraðsstjórninni og íbúum Buvuma og Koome eyja í Viktoríuvatni. Íbúar á eyjaklösunum tveimur eru um fimmtíu og fimm þúsund og frá árinu 2005 hafa rúmlega tíu þúsund þeirra sótt fullorðinsfræðslu. Íbúar héraðsins alls eru hins vegar um 900 þúsund talsins.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is