Nýr fjölmiðlafulltrúi ÞSSÍ

1.10.2004

Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, hefur ráðið Telmu L. Tómasson til starfa sem fjölmiðlafulltrúa stofnunarinnar. Telma hóf störf 1. október 2004.

Telma er menntuð í félags- og stjórnmálafræðum, hefur víðtæka reynslu á sviði blaða- og fréttamennsku og starfaði á því sviði í 15 ár. Lengst af var hún fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar og var varafréttastjóri frá 2001 til 2003. Telma starfaði einnig hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í Brussel um tíma, auk þess sem hún hefur sinnt kosningaeftirliti á vegum utanríkisráðuneytisins.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica