Fimmta mæðrahúsið opnað í Níkaragva

18.3.2008

Mæðrahúsin hafa sannað gildi sitt
Mæðrahúsin hafa sannað gildi sitt
Barnungar stúlkur verða oft barnshafandi í Níkaragva. Fremst á myndinni er fimmtán ára móðir með nýfætt barn sitt í mæðrahúsi. Fjær er verðandi móðir. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Mæðrahús byggt fyrir íslenskt þróunarframlag var formlega tekið í notkun á dögunum í þorpinu La Cruz de Rio Grande í Níkaragva. Gísli Pálsson umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í landinu afhenti húsið og flutti ávarp við opnunina. Mæðrahúsið í La Cruz er fimmta og síðasta húsið í þessum áfanga sem byggt er fyrir íslenskt fé.

Mæðrahúsin fimm þjóna strálbýlum byggðum Níkaragva en þau eru reist í grennd við sjúkrahús eða heilsugæslustöðvar í þeim tilgangi að þjóna konum í áhættumeðgöngu fyrir og eftir fæðingu. Þorpið La Cruz de Rio Grande er mjög afskekkt en það stendur lengst inni í frumskóginum á bökkum stórfljótsins Rio Grande de Matagalpa, nyrst á Suðursjálfsstjórnarsvæði Atlantshafsstrandar Níkaragva.

Að sögn Gerðar Gestsdóttur verkefnastjóra í félagslegum málum hjá ÞSSÍ í Níkaragva er mæðradauði umtalsvert hærri á þessu svæði en á landsvísu. “Samgöngur eru mjög erfiðar og eina leiðin til að komast á spítala er að sigla eftir ám og lónum til Bluefields, svæðishöfuðborgarinnar,” segir hún. “Ferðin tekur um sex klukkustundir á góðum hraðbát en um þrjá daga með áætlunarbátnum. Íbúar í La Cruz þurfa því oftast að vera sjálfum sér nægir með heilbrigðisþjónustu og eru núna að byggja nýja heilsugæslustöð við hliðina á nýja mæðrahúsinu. Hún verður með legurúmum, eins og sú sem notuð er núna, en verður auk þess með aðstöðu fyrir smærri skurðaðgerðir. Gert er ráð fyrir að skurðlæknir komi reglulega á svæðið til að sjá um aðgerðirnar.”

Gísli Pálsson, umdæmisstjóri ÞSSÍ gerði þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna að umræðuefni í ávarpi sínu og sagði mæðrahúsin mjög mikilvæga og árangursríka leið til að draga úr mæðra- og ungbarnadauða. Einnig legði fræðslustarfsemi mæðrahúsanna sitt af mörkum við menntun kvenna sem væri undirstaða velferðar fjölskyldnanna. Talsverður fjöldi fólks sótti athöfnina bæði bæjarbúar í La Cruz og fulltrúar bæði heilbrigðisyfirvalda og borgararáða.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica