Fullorðinsfræðsla í Úganda - nýútgefið námsefni fyrir enskukennslu

10.4.2008

Konur í fullorðinsfræðslu
Konur í fullorðinsfræðslu
Úgandískar konur í fullorðinsfræðslu. Ljósmynd: Lilja Dóra Kolbeinsdóttir.
Mynd 1 af 3
1 2 3

Námsefni í hagnýtri ensku er nýkomið út með styrk frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Úganda en það er hluti af fullorðinsfræðslunni í landinu sem Íslendingar styrkja. Leiðbeinendur verða þjálfaðir á næstunni en áætlað er að byrjað verði að nota nýja námsefnið á miðju ári. Að mati Lilju Dóru Kolbeinsdóttur verkefnisstjóra í Úganda munu til að byrja með alls um tíu þúsund manns njóta góðs af nýja námsefninu.

“Enska er ríkismál Úganda og öll formleg stjórnsýsla er á ensku, svo sem opinber skjöl, bankaviðskipti og flest þjónusta,” segir Lilja Dóra. “Hins vegar er enska annað tungumál flestra íbúa Úganda því ýmiss konar staðbundin tungumál eru móðurmál,” bætir hún við.

Tildrög útgáfunnar eru þau að í lok síðasta árs styrkti Þróunarsamvinnustofun Íslands í Úganda endurskoðun og gerð námsefnis fyrir hagnýta ensku í fullorðinsfræðslu í Úganda. Að sögn Lilju Dóru er nýja námsefnið ætlað þeim sem hafa farið í gegnum grunnnám í fullorðinsfræðslunni. “Þetta er ætlað þeim sem hafa þegar lært að lesa og skrifa og byggist á þarfagreiningum sem gerðar voru á landsvísu, sérstaklega þó í fiskimannasamfélögum í Kalangala héraði, á Sese eyjum.”

Lilja Dóra segir að með námsefninu sé leitast við að stuðla að hagnýtri þekkingu og auka orðaforða en notast er við raunveruleg dæmi eins og blaðaúrklippur, eyðublöð og skýrslur úr skólum, bönkum og opinberum gögnum.

Í fyrstu verður námsefnið notað í höfuðborginni Kampala og í Mukono og Kalangala héruðum þar sem ÞSSÍ styður við framkvæmd fullorðinsfræðslunnar.

Nýja námsefnið:

Sýnishorn I (PDF)

Sýnishorn II (PDF)





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica