Nýtt fullorðinsfræðsluverkefni í Mósambík

-Efnt til mikillar hátíðar af því tilefni í fátækasta héraði landsins

29.4.2008

Fulltrúi héraðsins flytur þakkir
Fulltrúi héraðsins flytur þakkir
Fulltrúi frá Bongo þorpi í Jangamo héraði færir Jóhanni Pálssyni, umdæmisstjóra ÞSSÍ í Mósambík og Aíres Ali mennta- og menningarmálaráðherra (vinstra megin) þakkir. Ljósmynd: Marta Einarsdóttir.
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Nýju verkefni á sviði fullorðinsfræðslu í fátækustu sýslu Mósambík, Inhambane, hefur verið hleypt af stokkunum. Fulltrúar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og mennta- og menningarmálaráðuneytis Mósambík skrifuðu undir samstarfssamning í lok marsmánaðar og formlegu upphafi verkefsins var fagnað á dögunum með miklum hátíðahöldum í Jangamo héraði. Verkefnið er til fjögurra ára og felst einkum að því að aðstoða menntayfirvöld að bæta fullorðinsfræðslu í sýslunni.

“Þrjú ný hagnýt námskeið verða meðal annars tekin upp sem öll miða að því að auka tekjur og bæta afkomu þátttakenda,” segir Marta Einarsdóttir verkefnisstjóri félagslegra verkefna í Mósambík. “Um er að ræða námskeið í lífrænni grænmetisrækt, gerð ódýrra múrsteina og viðskiptanámskeið fyrir einyrkja sem stunda kaup og sölu á ýmsum afurðum. Einnig verða búin til fjögur ný námskeið í samvinnu við menntamálayfirvöld á staðnum. Eitt sem stuðlar að því að miðla upplýsingum um mannréttindi og jafnrétti, annað um heilbrigði og varir gegn sjúkdómum eins og alnæmi og malaríu og það þriðja um betri meðferð og nýtingu á uppskeru og matvælum. Það fjórða verður skilgreint síðar eftir þörfum þátttakenda. Námskeiðin verða kennd sem aukagrein í fullorðinsfræðslubekkjum sem þegar eru starfandi og með því er búist við að þátttaka í fullorðinsfræðslu aukist í héraðinu. Einnig verða menntamálayfirvöld aðstoðuð við að bæta hefðbundna fullorðinsfræðslu með þjálfun kennara, kaupum á námsefni og aukinni aðstoð og eftirliti við fullorðinsfræðslubekkina. Þróunarsamvinnustofnun ætlar ennfremur aðstoða yfirvöld með viðbyggingu á húsnæði og byggingu á þjálfunar- og menntasetri fyrir héraðið,” segir Marta.

Yfir 80% undir fátækramörkum

Inhambane er sú sýsla í Mósambík þar sem flestir lifa undir fátæktarmörkum, eða 80,7% íbúanna. Í Jangamo héraði búa um hundrað þúsund manns og 80% hafa framfæri sitt af sjálfsþurftarbúskap. Ólæsi í héraðinu er 52,3%. Einungis 15% þeirra sem eru eldri en 25 ára hafa lokið grunnskólamenntun, 7. bekk. Í fyrra voru rúmlega 2000 nemendur í fullorðinsfræðslubekkjum Jangamo, 90% þátttakenda voru konur en ólæsi er meira meðal þeirra en karla því þær hafa haft minni möguleika á grunnmenntun. “Með því að taka þátt í fullorðinsfræðslu á fólk kost á því að ljúka því sem samsvarar 5. bekk grunnskóla á þremur árum og getur síðan haldið áfram skólagöngu í almenna skólakerfinu,” segir Marta. “Menntamálayfirvöld hafa hins vegar haft mjög takmarkað fjármagn til að sinna þörfum þeirra einstaklinga sem ekki áttu kost á skólagöngu sem börn og unglingar, sérstaklega hvað varðar hagnýt námskeið,” bætir hún við.

Verkefnið er unnið í samstarfi við héraðsstjórn og menntamálaskrifstofu Jangamo héraðs og menntamálaskrifstofu Inhambane sýslu, undir eftirliti fullorðinsfræðsludeildar mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Ráðherra á stórhátíð í Bongo

Undirskrift samningsins fór fram við fjölmenna athöfn 28. mars í Mapútó, höfuðborg Mósambík. Ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Maria Albertina da Conceição Bila skrifaði undir fyrir hönd mósambísku ríkisstjórnarinnar og Jóhann Pálsson umdæmisstjóri ÞSSÍ í Mósambík fyrir hönd Íslands. Einnig voru viðstödd Sr. Pedro Baptista, yfirmaður mennta- og menningarmálaskrifstofu Inhambane, João da Silva de Conceição Barreto héraðsstjóri Jangamo, Flora Augusto yfirmaður menntamála í Jangamo héraði, ásamt tíu starsmönnum menntamálaráðuneytisins og þremur starfsmönnum Þróunarsamvinnustofnunar.

Verkefninu var síðan formlega ýtt úr vör 18. apríl í Jangamo með miklum hátíðarhöldum að viðstöddum Aíres Ali ráðherra mennta og menningarmála, fylkisstjóra Inhambane og fylkisstjórninni, þar með talið yfirmanni menntamála í Inhambane. Einnig voru viðstaddir yfirmaður fullorðinsfræðsludeildar menntamálaráðuneytisins, héraðsstjóri og héraðsstjórn Jangamo héraðs og 31 hefðbundinn leiðtogi frá Jangamo héraði. “Þetta heppnaðist allt mjög vel og þessi kynning á verkefninu á örugglega eftir að auka þátttöku í verkefnunum og gefa okkur meðbyr,” segir Marta. “Það voru haldnar ræður, mikið dansað og sungið og sýning var á hlutum sem höfðu verið búnir til í fullorðinsfræðslubekkjum. Bæði ráðherra mennta- og menningarmála og héraðsstjóri Jangamo lýstu yfir miklu þakklæti til ÞSSÍ og íslensku ríkisstjórnarinnar fyrir stuðninginn við Jangamo hérað og töluðu um að þetta verkefni myndi verða mikil lyftistöng fyrir héraðið. Ráðherrann sagði að læsi og hagnýt þekking væri grunnurinn að því að draga úr fátækt og hvatti íbúana til að nýta sér tækifærið til að stunda fullorðinsfræðslu. Hann hvatti karlmenn sérstaklega en 2007 voru einungis 10% þátttakenda í Jangamo karlar.”

Um 200 íbuar Bongo þorps í Jangamo sóttu hátíðina auk fyrrnefndra heiðursgesta sem voruum 80 talsins.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica