Íslendingar í samstarf við Þróunarbanka Afríku við Malavívatn
Þróunarbanki Afríku hefur óskað eftir samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Malaví um tilraunaveiðar á Malavívatni til að meta hagkvæmni endurbóta á veiðarfærum sem Íslendingar hafa verið að þróa með heimamönnum undanfarin ár til veiða utan grunnslóðar. Að sögn Stefáns Kristmannssonar verkefnisstjóra fiskimála ÞSSÍ í Malaví er þess vænst að sameiginlegar niðurstöður að ári sýni fram á leiðir til að bæta hag fátækra fiskimanna og fjölskyldna þeirra við Malavívatn.
“Þetta samstarf er eðlilegt framhald af verkefni okkar,” segir Stefán. “Markmiðin breytast ekki en afríski þróunarbankinn tekur fullan þátt með viðbótarframlagi og gögn verða samnýtt.”
Fimm ára verkefni Þróunarsamvinnustofnunar um tækniþróun smábáta við Malavívatn hófst árið 2005. Verkefnið skiptist í þrjár þætti, fiskirannsóknir, þjálfun og veiðarfæratækni. Það er í höndum heimamanna í Monkey Bay en verkefnastjórinn er íslenskur. “Forsendur þessa starfs eru niðurstöður rannsókna á fiskistofnum í vatninu sem bent hafa til ónýttra fiskistofna á djúpu vatni sem hinn almenni fiskimaður kemst ekki til að nýta sér,” segir Stefán. “Gífurlega margir stunda veiðar á vatninu og helst á grunnslóð þar sem stofnar fara minnkandi. Sumir fiskimenn fara langa leið til að komast á betri mið og taka þó nokkra áhættu í frumstæðum bátum,” bætir hann við.
Fiskirannsóknir hafa verið reglulegur hluti verkefnisins með sýnatöku úr lönduðum afla ásamt rannsóknum á hegðun fiskitegunda. Annar mikilvægur þáttur verkefnisins snýst um þjálfum fyrir fiskimenn, fiskverkendur og sölufólk og Stefán segir að tæplega tvö þúsund manns hafa fengið þjálfun í öryggismálum í vatnasiglingum og skyndihjálp. Einnig hafi tæplega eitt þúsund einstaklingar frá fiskiþorpum við vatnið sótt námskeið í undirstöðuþáttum verslunar, konur til jafns við karla.
Útfæra veiðarfæri til veiða á dýpra vatni
“Sá hluti verkefnisins sem snýr að veiðafæratækni hefur farið seinna af stað en ætlað var enda ekki einfaldur,” segir Stefán. “Fátækir fiskimenn við Malavívatn hafa mjög takmarkaðan aðgang að lánsfé og búa við frumstæðar aðstæður. Eintrjáningar eru mest notaðir og litlir plankbátar en plastbátar sjást ekki enda dýrir. Þess vegna höfum við farið þá leið að útfæra veiðafæri og báta sem nú er að finna í mörgum fiskiþorpum til veiða á dýpra vatni. Þannig hefur hefðbundin nót verið útbúin til að ná dýpra en áður. Hugmyndir um stærri og öruggari báta úr óhefðbundnum viði sem fæst í landinu hafa verið útfærðar og smíði slíkra báta er að hefjast. Þessi þáttur verður megin þungi verkefnisins á næstu misserum og við væntum þess að niðurstöður bendi á leiðir fyrir fátæka fiskimenn við Malavívatn að auka afkomu sína og lífsviðurværi fjöldskyldna.”
Þróunarbanki Afríku, ADB, hefur að sögn Stefán verið með annað verkefni við Malavívatn frá árinu 2003 sem er í þann veginn að ljúka. Hann segir að í upphafi hafi verið áætlað að smíða 440 báta fyrir fiskimenn við vatnið og útbúa þá með veiðafærum og vélum til að sækja á dýpri mið. “Til stóð að lána fiskimönnum fé til að gera þeim kleift að kaupa bátana,” segir Stefán. “En það vantaði tæknilega útfærslu veiðafæranna og útgerðin leiddi til aukinnar ásóknar í fisk á grunnslóð, þvert gegn markmiðum verkefnisins. Nú eftir tæp fimm ár hefur á vegum verkefnisins aðeins verið smíðaðir tólf bátar fyrir fiskimenn og árangurinn því ekki burðugur. Þetta ástand mála hefur leitt til þess að Þróunarbankinn hefur óskað eftir samstarfi og ég er vongóður um að sameiginlegar hagkvæmnisathuganir okkar verði fiskimannasamfélögunum hér til hagsbóta.”




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is