Ný stefna ÞSSÍ í jafnréttismálum

5.10.2004

Stjórn ÞSSÍ hefur samþykkt nýja stefnu stofnunarinnar í jafnréttismálum. Markmið jafnréttisstefnunar er að stuðla að kynjajafnrétti í samstarfslöndum ÞSSÍ með því að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið í verkefni stofnunarinnar, en einnig að stuðla að jöfnum rétti kvenna og karla innan stofnunarinnar sjálfrar þannig að tryggt verði að mannauður hennar nýtist sem best.

Á undanförnum áratugum hefur áhugi á jafnrétti kvenna og karla aukist mikið á alþjóðlegum vettvangi. Almennt samkomulag er nú á milli aðildarþjóða Sameinuðu þjóðanna um að kynjajafnrétti sé forsenda fyrir réttlátri og árangursríkri þróun, og einnig er samkomulag um aðgerðir til að vinna gegn kynjamismunun. Innan þróunargeirans hefur ýmislegt verið gert undanfarna áratugi til að taka á kynjamisrétti og hefur ýmislegt þokast framávið, sérstaklega í sambandi við stofnanauppbyggingu þróunarsamvinnu-stofnananna sjálfra. En þrátt fyrir það vantar mikið á að jafnréttismál hafi orðið mikilvægur hluti allra þátta og stiga þróunarsamvinnu.

Áhersla á jafnréttismál í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands er byggð á tveimur meginatriðum. Í fyrsta lagi á þeirri sannfæringu að kynjajafnrétti sé mannréttindamál, og í öðru lagi á viðurkenningu á því að jafnrétti kynjanna – þ.e. sömu réttindi, tækifæri og skyldur karla og kvenna – séu forsenda fyrir árangursríkri þróun. Þannig lítur ÞSSÍ á jafnrétti milli kvenna og karla sem brýnt félagslegt málefni og mikilvægan þátt í viðleitni til að stuðla að mannréttindum og lýðræði.

Jafnréttisstefna ÞSSÍ

 

 




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica