Fimm starfsnemar á leið til þróunarlanda

20.5.2008

Starfsnemar 2008
Starfsnemar 2008
Starfsnemarnir fimm, t.f.v. Þóra Bjarnadóttir (Níkaragva), Katrín Magnúsdóttir (Namibía), Guðrún Birna Jóhannsdóttir (Úganda), Ásdís Bjarnadóttir (Malaví) og Nanna Rún Ásgeirsdóttir (Mósambík),

Fimm starfsnemar halda á næstunni til fimm mánaða dvalar í samstarfslöndum Íslendinga í þróunarsamvinnu. Þeir voru ráðnir úr hópi rúmlega 150 umsækjenda um stöðurnar en Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur frá árinu 2004 ráðið starfsnema til starfa í samstarfslöndunum.

Á þessu fimm mánaða tímabili, frá júlí til desember, fá starfsnemarnir tækifæri til að kynnast starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar á vettvangi, meðal annars gagnaöflun, undirbúningi og framkvæmd verkefna og fá þannig hagnýta leiðsögn og þjálfun við aðstæður í þróunarríkjunum.

Háskólanemarnir sem valdir voru til starfa að þessu sinni eru Þóra Bjarnadóttir, MA nemi í þróunarfræði, sem fer til Níkaragva, Ásdís Bjarnadóttir, MSc í þróunarfræðum, heldur til Malaví, Nanna Rún Ásgeirsdóttir, MA nemi í alþjóðasamskiptum, verður í Mósambík, Guðrún Birna Jóhannsdóttir, MA nemi í þróunarfræðum og alþjóðasamskiptum, fer til Úganda og Katrín Magnúsdóttir, MA nemi í mannfræði, verður í Namibíu.

Ekki var auglýst staða starfsnema á Srí Lanka fremur en á síðasta ári vegna átakanna í landinu.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica