Bæklingur fyrir sprotafyrirtæki gefinn út í Úganda

4.6.2008

Formleg afhending
Formleg afhending
Bæklingurinn var formlega afhentur við hátíðlega athöfn að viðstöddum fullltrúum ÞSSÍ og frumkvöðlasamtaka í Úganda.

Upplýsingabæklingur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Úganda er nýkominn út í tengslum við frumkvöðlaverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í landinu. “Þetta er afar gagnlegur leiðarvísir fyrir frumkvöðla um leiðir til að sækja sér fjármagn og faglega ráðgjöf varðandi mismunandi þætti atvinnurekstrar,” segir Skúli Helgason varaformaður stjórnar ÞSSÍ en hann var viðstaddur þegar ritið kom út fyrir skömmu.

Þróunarsamvinnustofnun hefur síðastliðin þrjú ár unnið með heimamönnum að verkefni á sviði frumkvöðlafræðslu í þeim tilgangi að stuðla að sjálfbærum og samkeppnishæfum einkageira í Úganda. “Sterk frumkvöðlamenning er eitt eftirtektarverðasta sérkenni atvinnulífs í Úganda,” segir Skúli. “Athyglivert að 90% af framleiðslu einkageirans verður til hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Frumkvöðlaandinn speglast í afbragðs viðtökum frumkvöðlanámskeiða sem við Íslendingar höfum fjármagnað undanfarin misseri og sá mikli áhugi staðfestir hve mikil þörf er á endurmenntun fyrir einyrkja og atvinnurekendur með lítil og meðalstór fyrirtæki.”

Undirbúningur frumkvöðlanámskeiðanna hófst árið 2006 með komu átta leiðbeinenda til Íslands sem hlutu þjálfun á vegum símenntunar Háskólans í Reykjavík. Fyrstu námskeiðin voru haldin árið 2007 og nú hafa 780 einstaklingar lokið slíkum námskeiðum sem haldin hafa verið í tólf héruðum Úganda. “Það er sérstaklega ánægjulegt að eftirspurnin hefur farið fram úr björtustu vonum og má í því sambandi nefna að á síðari hluta árins 2007 sóttu nær tvöfalt fleiri frumkvöðlanámskeiðin en áætlanir gerðu ráð fyrir,” segir Skúli Helgason.

Bæklingur fyrir sprotafyrirtæki (PDF)





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica