Skrifstofustjórar frá samstarfslöndum Íslendinga í heimsókn
Sex skrifstofustjórar á skrifstofum og sendiráðum Íslands í samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands eru hér á landi um þessar mundir í náms- og kynnisferð. Í öllum löndunum eru skrifstofustjórarnir konur frá viðkomandi landi með þeirri einu undantekningu að íslensk kona stýrir skrifstofunni í Kampala, höfuðborg Úganda. Skristofustjórarnir áttu hádegisverðarfund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra í gær.
Skrifstofustjórar samstarfslandanna hafa margar hverjar unnið fyrir Íslendinga um langt árabil en aðeins ein þeirra hefur áður komið til landsins. Í ferðinni er sérstök áhersla lögð á fræðslu um fjármála- og skjalavistunarkerfi Þróunarsamvinnustofnunar en skrifstofustjórunum gefst einnig tækifæri til að skoða sig um í höfuðborginni og næsta nágrenni.
Á myndinni eru skrifstofustjórarnir með utanríkisráðherra, t.f.v. Sharon Pondler frá Níkaragva, Jenny van Bosch frá Namibíu, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Gilda Lopes frá Mósambík, Tharsini Pillai frá Srí Lanka, Linley Magwira frá Malaví og Guðrún Kristjánsdóttir frá Úganda. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is