Nýr samningur um þróunarsamvinnu Íslands og Namibíu undirritaður
Nýr samningur um þróunarsamvinnu Íslands og Namibíu var undirritaður í Windhoek, höfuðborg Namibíu, í morgun. Í samningnum er kveðið á um vilja þjóðanna til að vinna sameiginlega að aukinni hagsæld og eflingu félagslegrar þróunar í Namibíu. Um er að ræða almennan rammasamning um verklagsreglur og aðferðafræði í því sambandi.
Samninginn undirrituðu ráðuneytisstjórarnir Gunnar Snorri Gunnarsson, fyrir hönd Íslands, og Samuel Gôagoseb, af hálfu Namibíu. Samningurinn er gerður til þriggja ára og gildir til ársloka 2007.
Á árinu 2004 er um einni milljón bandaríkjadala varið til íslenskrar þróunaraðstoðar í Namibíu og stefnt er að umtalsverðri aukningu á næsta ári. Áætlanir gera ráð fyrir nokkurri áherslubreytingu í aðstoðinni, en til þessa hefur einkum verið unnið að verkefnum tengdum sjávarútvegi. Í þróunarsamvinnu landanna á næstu árum er annars vegar miðað við að veitt verði tæknileg ráðgjöf varðandi innri uppbyggingu í stofnunum og ráðuneytum og hins vegar að aðstoð við fátækasta fólkið með milliliðalausu samstarfi verði aukin. Félagsleg verkefnum verður með þessu gert hærra undir höfði, en þeim er ætlað að bæta kjör hinna verst settu einkum kvenna og barna. Nú þegar eru fjögur slík verkefni starfandi og njóta á þriðja hundrað barna og á fimmta hundrað kvenna góðs af þeim.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is