Þróunarsamvinnustofnun veitir styrki til doktors- og meistaranema
Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur ákveðið að veita þrjá styrki til doktorsverkefna og tvo styrki til meistaraverkefna í samræmi við tillögu matsnefndar Háskóla Íslands. Alls bárust að þessu sinni tuttugu umsóknir um styrki ÞSSÍ, ellefu um meistarastyrki og níu um doktorsstyrki. Doktorsstyrkina hlutu Sigríður Björk Þormar, Kristinn Hermannsson og Pétur Waldorff, en meistarastyrkina hlutu Þórður Örn Hjálmarsson og Jakob Hafþór Björnsson.
Matsnefndin lagði til við stjórn ÞSSÍ að “vegna mikillar grósku, mikils áhuga á þróunarsamstarfi og fjölda góðra umsókna, sérstakalega um doktorsstyrki” að veittir yrðu þrír doktorsstyrkir í ár og tveir meistarastyrkir, en að jafnaði eru veittir tveir styrkir fyrir doktorsnema og tveir fyrir meistaranema.
Sigríður Björk Þormar hyggst rannsaka úrvinnslu áfalla eftir vinnu á hamfarasvæðum, áhrif á líkamlega og andlega heilsu sjálfboðaliða mannúðarsamtaka. Kristinn Hermannsson ætlar í rannsókn sinni að meta hagræn áhrif æðri menntunar í Malaví og doktorsrannsókn Péturs Waldorff lýtur að menningarlegum og pólítískum straumum í þróunarsamvinnu í Angóla eftir stríð.
“Þróunaraðstoð: hlutverk heimamanna í þróunarstarfi” er heiti rannsóknar Þórðar Arnar Hjálmarssonar sem unnin verður í Malaví og frásagnarformið verður bæði hefbðundin ritgerð og heimildamynd. Jakob Hafþór Björnsson ætlar í rannsókn sinni að meta kostnaðar-ábatagreiningu jarðhitaverkefna Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Níkaragva.
Doktorsnemarnir fá styrk að upphæð 1.4 milljónir króna, auk ferðastyrks, en meistaranemarnir 700 þúsund og ferðastyrk.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is