Ársskýrsla ÞSSÍ: Menntamál stærsti málaflokkurinn

16.7.2008

Ársskýrsla
Ársskýrsla
Ársskýrsla ÞSSÍ fyrir árið 2007 er komin út. Textinn er bæði á íelensku og ensku.

“Íslendingar búa nú að ríkari þekkingu, sérmenntun og reynslu af störfum á vettvangi í þróunarríkjum en áður þekkist. Þetta á ekki síst við um starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar sem hafa margir hverjir áralanga reynslu af störfum í þróunarríkjum en saga ÞSSÍ spannar rúman aldarfjórðung. Ársskýrslan er vitnisburður um þennan mannauð, yfirlit um starfsemina á einu ári, verkefni og samstarf við þær sex þjóðir sem Íslendingar hafa gert tvíhliða samninga við um þróunarsamvinnu,” segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra meðal annars í formála ársskýrslu Þróunarsamvinnustofnunar fyrir árið 2007 sem nýkomin er út.

Meginefni ársskýrslunnar er samantekt á starfsemi og verkefnum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í sex samstarfsríkjum, Malaví, Mósambík, Namibíu, Úganda, Srí Lanka og Níkaragva.

Í fjármálaskýrslu kemur fram að ÞSSÍ ráðstafaði 17.4 milljónum dala til tvíhliða þróunarsamvinnu á árinu 2007 sem er 18% aukning frá árinu áður. Í íslenskum krónum talið nam framlagið rúmlega 1.1 milljarði. Hlutdeild ÞSSÍ í allri opinberri þróunaraðstoð Íslands nam um 37% á árinu 2007.

Malaví er áfram stærsta samstarfsland Íslendinga með 27% af heildarframlögum en mesta aukningin milli ára var í Mósambík sem er með 21% útgjaldanna. Helsta breytingin eftir málaflokkun er sú að menntamál er nú stærsti málaflokkurinn með 31% af heildarframlögum eða um 346 milljónir króna. Fiskimál, sem hafa alla tíð verið fyrirferðarmesti málaflokkurinn, er í öðru sæti með 21% heildarframlaga.

Samkvæmt ársskýrslunni sendi Þróunarsamvinnustofnun 76 skammtímaráðgjafa til samstarfslandanna en stofnunin hefur í vaxandi mæli tekið upp samstarf við íslenska háskóla og sérfræðistofnanir um afmörkuð verkefni í þróunarmálum. Af helstu samstarfsaðilum má nefna Háskóla Íslands, Háskóla Reykjavíkur, Háskólann á Akureyri, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), Fiskistofu, Matís og Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.

Hægt er nálgast ársskýrsluna á hér á vef Þróunarsamvinnustofnunar, www.iceida.is á pdf.sniði. Einnig er hægt að hringja í 545-8980 og óska eftir að fá sent prentað eintak. Ársskýrslan er gefin út bæði á ensku og íslensku.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica