Fyrsti keisarinn í Malaví!

17.7.2008

Um 40 þúsund barshafandi á hverju ári
Sjö fulltrúar kosnir í þróunarsamvinnunefnd
Nefndin á að taka þátt í stefnumarkandi umræðu og ákvörðunum ráðherra um alþjóðlega þróunarsamvinnu til lengri tíma. Myndin er frá Malaví, einu af sex samstarfsríkjum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Fyrsti keisaraskurðurinn var framkvæmdur á dögunum í sjúkrahúsinu í Monkey Bay í Malaví þegar þar var tekin í notkun skurðstofa. “Aðgerðirnar fara vel af stað og við væntum þess að nýja aðstaðan verði til þess að bjarga konum í barnsnauð,” segir Guðbrandur Þorkelsson læknir sem starfar sem ráðgjafi við sjúkrahúsið fyrir hönd Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.

Til þessa hafa flestar aðgerðir á þessu svæði farið fram á héraðssjúkrahúsinu í héraðshöfuðborginni Mangochi. “Á svæðinu eru rúmlega 40 þúsund konur barnshafandi á hverju ári, um 6400 þeirra þurfa keisaraskurð og við reiknum með að geta gert að minnsta kosti 300 keisaraskurði árlega. Það er ákaflega kærkomið að geta létt álaginu af héraðssjúkrahúsinu, sérstaklega á fæðingar- og kvensjúkdómasviði. Áður þurfti að oft að flytja konurnar til Mangochi, sem er að minnsta kosti klukkutíma ferðalag og mun lengra á rigningartímanum.” segir Guðbrandur.

Með tillkomu skurðstofunnar verða tímamót í sögu sjúkrahússins, sem byggt var fyrir íslenskt þróunarfé, og þjónustan færist yfir á nýtt stig. Aðgerðir tengdar kvensjúkdómum verða að sögn Guðbrands gerðar í einhverjum mæli í Monkey Bay sjúkrahúsinu og einnig minniháttar bæklunaraðgerðir þegar röntgen aðstaða verður tilbúin. “Það er því að vonum mikil ánægja með skurðstofuna og yfirvöld heilbrigðismála í héraðinu hafa verið mjög áhugasöm um þennan rekstur því sannast sagna hafa þau verið að drukkna í aðgerðum í Mangochi sjúkrahúsinu,” segir hann.

Guðbrandur bendir á að starfsemi sjúkrahússins hafi aukist ár frá ári og farið að þrengja að á ýmsum sviðum. “Það er þörf fyrir frekari stækkun sjúkrhússins og vonandi að byggingaframkvæmdir haldi áfram af fullum krafti,” bætir hann við.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica