Vatn sprettur uppúr fyrstu borholu ársins

11.8.2008

Vatn og hreinlæti
Borað fyrir vatni
Borað fyrir vatni í Mangochi
Mynd 3 af 3
1 2 3

Starfsmenn vatns- og hreinlætisverkefnis Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Monkey Bay vinna nú hörðum höndum að því að bora fyrir vatni og grafa vatnsbrunna til að tryggja íbúum aðgang að hreinu og ómenguðu vatni. “Í byrjun ágúst var fysta borholan boruð í Nankumba hreppi. Eftir átta stunda borun fannst vatn á um það bil 80 metra dýpi. Það vakti mikinn fögnuð þorpsbúa sem fram til þessa hafa þurft að sækja vatn í mengaðar lindir um langan veg frá þorpinu,” segir Glúmur Baldvinsson, verkefnisstjóri ÞSSÍ í vatns- og hreinlætisverkefninu.

Glúmur segir að allir þorpsbúar hafi verið viðstaddir og konur dansað og sungið. “Konurnar sjá enda alfarið um vatnsburð, þvott og meðhöndlan vatns almennt eins og tíðkast í Afríku. Börnin hrópuðu af ákafa og gleði líkt og íslensk börn á flugeldasýningu. Ráðuneytisstjóri ráðuneytis vatnsveitu og vatnsþróunar, frú Adrina Mchiera, var viðstaddur þegar vatnið spratt uppúr jörðinni og lýsti yfir mikilli ánægju með verkefnið og framlag ÞSSÍ. Hún ætlar ásamt ráðherra að heimsækja starfsmenn verkefnisins síðla í ágúst þegar áætlað er að grafa þrítugustu og síðustu borholuna í ár,” segir Glúmur.

Náið samstarf við heimamenn

Verkefnið hófst í fyrra og þá voru boraðar 30 borholur, djúpir vatnsbrunnar, og grafnir 27 brunnar á litlu dýpi. Ennfremur voru byggð þrjú þúsund vistvæn salerni. Glúmur segir að verkefnið sé unnið í nánu samstarfi við heimamenn sem útvegi m.a. vinnuafl og efni eins og tök eru á enda sé eignarhaldið þeirra og stefnt sé að því að þekking á brunnagerð og byggingu vistvænna salerna haldist á svæðinu til að tryggja sjálfbærni. Allir starfsmenn verkefnisinis eru Malavar að undanskyldum Glúmi.

Í ár er markmiðið að grafa 150 brunna, bora 300 borholur og byggja 8 þúsund vistvæn salerni. “Við erum að etja kappi við tímann því verkinu verður að ljúka fyrir regntímabilið sem hefst í desember. Þegar regnið brestur á í öllu sínu veldi fer allt á flot og framkvæmdir leggjast meira og minna af í landinu,” segir Glúmur.

Meginmarkmið verkefnisins er að stuðla að bættri heilsu og heilbrigði íbúa Mangochi og þar með að auka hagsæld íbúa. Sjúkdómar sem orsakast af óhreinu drykkjarvatni og óhreinlæti eru algengir líkt og niðurgangur og kólera, en reglulega hafa brotist út kólerufaraldrar og Glúmur segir að allt að 33.000 manns hafi smitast og 100 manns látist á ári hverju í þessari sveit. “Óhreint og mengað drykkjarvatn og illa frá gengin salerni laða einnig að skordýr eins og moskítóflugur sem eykur stórlega hættu á malaríusmiti. Við vinnum náið með stjórnvöldum með það að markmiði að aðstoða þau við að ná Þúsaldarmarkmiðum um þróun og eigin markmiðum um efnahagslegan vöxt og þróun,” segir hann.