Skólastofur í byggingu á Atlantshafsströnd Níkaragva
Bygging á skólastofum sem ÞSSÍ fjármagnar á Atlantshafsströnd Níkaragva er nú hafin. Um er að ræða 20 stofur í 9 skólum í sveitarfélögunum Bluefields og Puerto Cabezas. Verið að er byggja við skóla þar sem þeir ráða ekki lengur við fjölda nemenda. Stofurnar verða útbúnar með helstu nauðsynjum, s.s. stólum fyrir nemendur og kennaraborðum. Einnig verða byggðir kamrar eða þeir lagaðir þar sem er þörf.
“Það er mikil þörf fyrir skólastofur á þessu svæði,” segir Grethel García, starfsmaður ÞSSÍ í Níkaragva sem hefur umsjón með verkefninu. “Staðsetning skólanna er valin með það í huga að ekki aðeins börnin úr bænum hafi aðgang að þeim, heldur einnig krakkarnir í nærliggjandi sveitum,” Grethel nefnir ýmsar ástæður fyrir því að börnin stundi ekki skóla. Sum þeirra þurfa að fara langar vegalengdir sem getur reynst hættulegt sér í lagi á rigningartímabilinu sem stendur yfir frá maí til desember. Leiðin í skólann getur þá verið torfær vegna aurs og vaxta í ám vegna mikilla og stöðugra rigninga. Einnig segir hún talsvert brottfall á uppskerutímanum þar sem margir foreldrar kjósa fremur að nýta vinnukraft barna sinna heldur en að senda þau í skóla.
Síðan núverandi ríkisstjórn kom til valda á síðasta ári hefur verið lögð rík áhersla á menntamál en meðal fyrstu verka stjórnarinnar var að afnema gjaldtöku á grunnskólastigi. Í kjölfar þess hefur börnum sem sækja grunnskóla fjölgað ört, sérstaklega á þeim svæðum þar sem skólasókn var hvað lökust fyrir.
Sjálfstjórnarhéruðin á Atlantshafsströndinni eru meðal fátækustu svæða landsins og þar er mikil þörf fyrir uppbyggingu innviða. Aðstæður versnuðu enn frekar með eyðileggingu fellibylsins Félix sem gekk yfir svæðið í september 2007, en talið er að 90% af skólastofum héraðanna hafi skemmst. Á mörgum stöðum eru ummerki fellibylsins ennþá augljós. Í sumum skólum sem starfsmenn ÞSSÍ heimsóttu fyrr í mánuðinum var búið að koma fyrir kennslustofum utandyra með einungis plasti til að skýla nemendum frá sterki sól og rigningu. Vegna fátæktar kjósa margir foreldrar að senda börnin sín í vinnu í stað skóla auk þess sem yfirsetnir og illa útbúnir skólar auka hlutfall þeirra sem hætta í skóla. Bygging skólastofanna stuðlar því að aukinni skólasókn og bættum kjörum barnanna.
Bygging skólastofanna er samstarfsverkefni á milli ÞSSÍ, menntamálaráðuneytisins og sveitafélaganna Bluefields og Puerto Cabezas. Verkefnið mun gagnast um 3.700 börnum en skólastofurnar munu einnig nýtast sem athvörf eða skýli í neyð, t.d. við náttúruhamfarir, en fellibylir eru tíðir á þessu svæði. Áætlað er að verkefninu ljúki í nóvember á þessu ári.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is