Þróunarsamvinnustofnun á Menningarnótt
Þróunarsamvinnustofnun Íslands kynnir starfsemi sína á Menningarnótt Reykjavíkurborgar með utanríkisráðuneytinu sem fyrst ráðuneyta verður með opið hús laugardaginn 23. ágúst í húsakynnum sínum við Rauðarárstíg milli kl. 14 og 18.
Eitt af mörgum veggspjöldum um utanríkismál er helgað starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar sem starfar á grundvelli tvíhliða milliríkjasamninga í sex samstarfslöndum, fjórum Afríkuríkjum, Malaví, Mósambík, Úganda og Namibíu, Mið-Ameríkuríkinu Níkaragva og Srí Lanka í Asíu. Starfsmenn ÞSSÍ verða á staðnum og svara spurningum almennings.
Sjá nánar á heimasíðu utanríkisráðuneytisins:




Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is