Tækifæri sem ég nýti til fulls
-Stella Samúelsdóttir og Ásdís Bjarnardóttir í Malaví ræða við Moses Thomas, ungan háskólanema frá þorpi við Malavívatn
“Það er langt frá því að vera auðvelt að fá stuðning til að fara í háskólanám og þetta er tækifæri sem ég nýti mér til fulls, skólinn opnar augu mín fyrir margvíslegum málefnum, bætir möguleika mína til atvinnu og síðast en ekki síst er háskólanámið mjög þroskandi fyrir mig,” segir Moses Thomas, ungur Malavi, sem er fyrsti nemandinn frá Namazizi skólanum sem valinn var af ríkinu til að stunda nám á háskólastigi.
Moses Thomas er 22 ára nemandi í Chancellor College í Zomba, fæddur og uppalinn í þorpinu Madzedze í Moneky Bay þar sem hann ólst upp með foreldrum og systkinum, þremur bræðrum og fjórum systrum. Þau búa öll enn í þorpinu en Moses er sá fyrsti í fjölskyldunni sem fer í háskóla. Hann útskrifaðist úr grunnskólanum Namazizi árið 2000 en það var fyrsti skólinn sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands byggði í Malaví. Skólinn er vinaskóli Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi.
Eftir grunnskólanám fór Moses í annan skóla sem tengist Íslendingum, Lisumbwi framhaldsskólann, en Rótarýklúbbur Reykjavíkur og Soroptimistar í Reykjavík veita skólastúlkum námsstyrki við þann skóla fyrir milligöngu Þróunarsamvinnustofnunar. Moses á íslenskan leynivin sem styrkti hann til náms í skólanum og námsárangurinn í Lisumbwi varð til þess að ríkið valdi hann til háskólanáms í Chancellor College í menntun og vísindum.
“Sjálfur hefði ég valið aðra námsgrein ef ég hefði mátt ráða. Ég hefði valið endurskoðun en hér í Malaví er það ríkið sem ákveður námsbrautina eftir því hvar þörfin er mest. Mér hefur alltaf þótt skemmtilegt að vinna með tölur og stærðfræðin lá vel við mér, ég gæti til dæmis vel hugsað mér að verða bankastarfsmaður í framtíðinni, jafnvel þingmaður eða forseti,” segir Moses og brosir um leið og hann nefnir síðasta starfsheitið.
-Hverjir hvöttu þig helst áfram á menntabrautinni?
“Gumbala skólastjórinn minn í Namazizi var mjög hvetjandi og sagði að ef ég stæði mig vel væri mögulegt að ég kæmist áfram í háskólanám. Foreldrar mínir voru líka ósparir á hvatningu, sögðust vera stolt af mér og þau lögðu líka alltaf mikið upp úr menntun. Mamma kláraði reyndar aðeins fyrsta bekk en pabbi lauk áttunda bekk og vissulega hefði það verið freistandi að gerast fiskimaður því heimili okkar er alveg við vatnið og margir krakkar detta úr skóla út af þeirri freistingu. En foreldrar mínir sögðu alltaf að ég ætti að halda áfram menntaveginn, ég hefði gáfur sem ekki væri öllum gefnar. Ég nota líka sjálfur hvert tækifæri sem gefst til að hvetja systkini mín áfram í námi. Þau fyllast eldmóði af árangri mínum og ein systra minna varð efst í sínum bekk í vor,” segir hann stoltur.
Moses er á þriðja ári af fjórum í háskólanáminu í borginni Zomba en um fjögur hundruð nemar eru í sama námi. Hann býr í litlu herbergi með vini sínum á heimavist skólans og þar er þeim séð fyrir mat líka. Hann segist undirbúa sig fyrir námið í þrjár klukkustundir á dag að jafnaði en lengur á próftíma. Moses lætur vel af skólanum, segir námið áhugavert, menntunin sé góð og kennararnir líka. Honum finnst skemmtilegt að búa í borg og gæti hugsað sér það í framtíðinni enda orðinn vanur þeim lífsstíl.
-Áhugamálin og frítíminn?
“Þegar ég á frí fer ég oftast til Monkey Bay og hjálpa foreldrum mínum á ökrunum. Fótbolti er helsta áhugamál mitt og ég spila með CHACO liði Chancellor College. Mér finnst gaman að horfa á kvikmyndir á DVD, einnig að lesa blöðin og fylgjast með því sem er að gerast í Malaví. Ég hlusta mikið á BBC til að fylgjast með hvað er að gerast á alþjóðavettvangi. Tónlist veitir mér líka mikla ánægju og þá sérstaklega reggae og gospel en ég er trúaður og meðlimur í mörgum félögum kristinna innan skólans,” segir Moses Thomas að lokum.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is