Nýtt verkefni sem miðar að því að draga úr kynbundnu ofbeldi í Níkaragva

3.9.2008

Juigalpa
Juigalpa
Verkefnið miðar að því að draga úr kynbundnu ofbeldi í Juigalpa.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ákveðið að styðja verkefni í Níkaragva sem hefur það að markmiði að draga úr kynbundnu ofbeldi í sveitarfélaginu Juigalpa í miðhluta landsins. Framkvæmd verkefnisins verður í höndum kvennasamtakanna AMNLAE, en síðustu 30 árin hafa samtökin unnið að því að bæta stöðu kvenna og auka réttindi þeirra.

Gerður Gestsdóttir verkefnastjóri ÞSSÍ í Níkaragva segir að kynbundið ofbeldi í Níkaragva sé alvarlegt og vaxandi vandamál í landinu, ekki síst á þeim slóðum sem verkefnið nær til. Juigalpa er nautgriparæktarsvæði og karllæg menning enn sterkari þar en annars staðar að sögn Gerðar. “Það er líka mikil fátækt á svæðinu, en við slíkar aðstæður er mun algengara að konur hafi ekki eða þekki ekki úrræði til að bregðast við kynbundu ofbeldi” segir Gerður.

Með verkefninu verður leitast við að auka vitund kvenna og stofnana um kynbundið ofbeldi, afleiðingar þess og úrræði. Verkefnið er áætlað til eins árs til að byrja með og leggur ÞSSÍ til um þriðjung af fjármagninu, eða um 20 þúsund Bandaríkjadali.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica