Kynbundið ofbeldi eykst í Malaví

5.9.2008

Kvennaathvarf í Lilongve
Kvennaathvarf í Lilongve
Forstöðukona kvennaathvarfsins ásamt mæðrum og börnum í athvarfinu. Ljósmynd: Ásdís Bjarnadóttir.

Nýjar tölur frá Malaví sýna að kynbundið ofbeldi er að aukast. Árið 2007 varð 18% aukning á tilkynntum málum um heimilisofbeldi. Í grein Ásdísar Bjarnadóttur starfsnema á umdæmisskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar, sem heimsótti á dögunum kvenna-athvarf í borginni, koma um 50 mál koma til kasta samtakanna í mánuði hverjum. Forstöðukonan, Catherine Munthali, segir að stundum fallist þeim hendur yfir fjölda þeim sem leitar til þeirra í athvarfið.

“Í Malaví ríkti hér áður fyrr algjör þögn um heimilisofbeldi. Með tilkomu nýju laganna og herferð frjálsra félagasamtaka sem leggja áherslu á að opna umræðu um þessi mál og breyta samfélagslegum viðhorfum hefur orðið breyting þar á. Enn er mikið verk fyrir höndum en opinber umræða um þetta vandamál er fyrsta skrefið,” skrifar Ásdís.

Sjá nánar grein hennar í heild (pdf).





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica