Samstarf um vistkerfi Benguela hafsvæðisins

10.9.2008

Benguela hafsvæðið
Benguela hafsvæðið
Íslendingar styðja við vistfræðilegar rannsóknir á Benguela hafsvæðinu gegnum umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í Namibíu.

Þróunarhjálp Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ICEIDA) hafa ákveðið að styðja mannauðs- og þjálfunarverkefni sem lýtur að rannsóknum á vistkerfi Benguela hafsvæðisins undan ströndum Namibíu, Suður-Afríku og Angóla. Skrifað var undir samning þessa efnis í Windhoek, höfuðborg Namibíu á föstudaginn var.

Að sögn Vilhjálms Wiium umdæmisstjóra ÞSSÍ í Namibíu er starfandi ráðgjafanefnd landanna þriggja um Benguela hafstrauminn, Benguela Current Commission (BCC). “Framkvæmdastjóri BCC setti sig í samband við umdæmsskrifstofu ÞSSÍ á síðasta ári og spurðist fyrir um möguleika á aðstoð,” segir Vilhjálmur. “Eftir nokkrar viðræður, þar sem Þróunarhjálp Sameinuðu þjóðanna kom líka að máli, var ákveðið að styðja nefndina á sviði uppbyggingar mannauðs og þjálfunar.”

Þróunarsamvinnustofnun Íslands studdi um langt árabil sjávarútvegsverkefni í Namibíu, m.a. verkefni sem tengdust Hafrannsóknarstofnun Namibíu. Vilhjálmur segir að Namibíumenn hafi frá árinu 1995, í samstarfi við nágranna sína í suðri og norðri, byggt upp viðmikið rannsóknasamstarf um Benguela hafsvæðið, ekki síst varðandi vistkerfið. “Öllum þjóðunum þremur er mikið í mun að nýta auðlindina með sjálfbærni að leiðarljósi og þá er verndun á vistkerfi hafssvæðisins einn mikilvægasti þátturinn. Ásamt UNDP erum við Íslendingar að styðja þær rannsóknir,” segir Vilhjálmur.

Sjá ennfremur frétt dagblaðsins NAMIBIAN

Frétt New Era í Namibíu





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica